Hagnaður 185 milljónir króna Helstu niðurstöður ársreiknings Sparisjóðs Bolungarvíkur fyrir árið 2006: " Hagnaður varð 185 milljónir króna eftir skatta samanborið við 110 milljóna króna hagnað á árinu 2005. Fyrir skatta nam hagnaðurinn 223 milljónum króna samanborið við 128 milljóna króna hagnað á árinu 2005. " Arðsemi eigin fjár eftir skatta var 20,2% samanborið við 12,7% arðsemi á árinu 2005. " Hreinar vaxtatekjur lækkuðu um 6,7% frá fyrra ári og voru 145 milljón króna. " Hreinar rekstrartekjur námu 460 milljónum króna samanborið við 370 milljónir króna á árinu 2005, sem er 24,3% aukning milli ára. " Hlutfall kostnaðar af tekjum var 37,6% samanborið við 45,9% á árinu 2005. " Framlag í afskriftareikning útlána nam 63 milljónum króna, lækkar um 11,2% á milli ára, var 71 milljónir króna á árinu 2005. Framlagið er að lækka sem hlutfall af útlánum, er 1,8% í árslok 2006 samanborið við 2,5% í árslok 2005. " Heildareignir námu 6.571 milljónum króna í árslok 2006 og hafa aukist um 14,8% á árinu. " Útlán til viðskiptamanna námu 3.518 milljónum króna í árslok 2006 og jukust um 23,2%. hlutfall útlána til einstaklinga var í árslok 2006 er 55,5% en var 60,1,9% í árslok 2005. " Innlán námu 3.165 milljón króna í lok ársins 2006, sem er 33,1% aukning. " Eigið fé nam 1.152 milljónum króna í lok ársins 2006, eykst um 23,0% á árinu, og CAD-eiginfjárhlutfall var 24,2% í lok ársins samanborið við 25,4% í árslok 2005. " Stjórn Sparisjóðs Bolungarvíkur mun leggja til við aðalfund að stofnfjáraðilum verði greiddur 15% arður af stofnfjáreign í lok ársins 2006. Fjárhæðir í milljónum króna á verðlagi hvers árs. 2006 2005 2004 2003 2002 Rekstur Vaxtatekjur 541 429 362 344 426 Vaxtagjöld 396 274 247 238 266 Hreinar vaxtatekjur 145 155 115 106 159 Aðrar rekstrartekjur 315 215 194 144 80 Hreinar rekstrartekjur 460 370 309 251 239 Önnur rekstrargjöld 173 170 141 147 135 Hagnaður fyrir framlag í afskriftareikning útlána 286 200 168 104 104 Framlag í afskriftareikning útlána -64 -72 -97 -99 -90 Hagnaður fyrir skatta 223 128 71 5 14 Tekjuskattur -38 -18 -11 -1 -1 Eignaskattur 0 0 -3 -3 -3 Hagnaður (tap) ársins 185 110 57 1 10 EFNAHAGUR: Eignir Sjóður og kröfur á lánastofnanir 830 877 997 1.848 1.194 Útlán 3.518 2.856 2.676 2.393 3.057 Markaðsbréf og eignarhlutir í félögum 2.142 1.911 1.433 1.156 935 Aðrar eignir 80 82 92 100 103 Eignir samtals 6.571 5.726 5.198 5.497 5.289 Skuldir og eigið fé : Skuldir við lánastofnanir 1.303 1.152 819 1.047 958 Innlán 3.165 2.377 2.316 2.353 2.073 Lántaka 625 995 939 1.132 1.300 Aðrar skuldir og skuldbindingar 246 190 162 141 129 Víkjandi lán 81 76 161 85 83 Skuldir samtals 5.420 4.789 4.397 4.759 4.543 Eigið fé 1.152 939 801 737 746 Skuldir og eigið fé samtals 6.571 5.726 5.198 5.497 5.289 KENNITÖLUR: Arðsemi eigin fjár 24,30% 12,70% 7,70% -1,10% 1,40% Eiginfjárhlutfall 17,50% 16,40% 15,40% 13,40% 14,10% Vaxtamunur (hreinar vaxtatekjur / heildarfjármagni) 2,20% 2,80% 2,20% 2,00% 3,00% Framlag í afskriftareikning í hlutfalli af meðalstöðu fjármagns.. 1,00% 1,30% 1,80% 1,80% 1,70% Aðrar rekstrartekjur í hlutfalli af kostnaði 181,50% 126,60% 137,60% 98,00% 59,30% Rekstrarkostn. í hlutfalli af hreinum rekstrartekjum 37,70% 45,90% 45,60% 58,60% 56,50% Ársreikningur Sparisjóðs Bolungarvíkur fyrir árið 2006 sýnir að Sparisjóðurinn er í traustum vexti. " Hagnaður af rekstri Sparisjóðs Bolungarvíkur nam 185 milljónum króna 2006 samanborið við 110 milljóna króna hagnað árið 2005. " Arðsemi eigin fjár var 20,2% sem er sú besta í mörg ár. " Gæði útlánasafns Sparisjóðs Bolungarvíkur heldur áfram að styrkjast sem meðal annars endurspeglast í lækkun á vanskilahlutfalli og lækkun á hlutfalli afskrifareiknings útlána sem hlutfall af útlánum og veittum ábyrgðum. Heildarvanskil viðskiptavina Sparisjóðs Bolungarvíkur námu 3,2% af útlánum í árslok 2006 á móti 3,6% vanskilum í árslok 2005. Áætlanir gera ráð fyrir að þrátt fyrir harða samkeppni á fjármálamarkaði verði afkoma hjá Sparisjóðs Bolungarvíkur á árinu 2007 í takt við afkomu ársins 2006. Meðalfjöldi starfsmanna á árinu umreiknaður í heilsárs störf var 15. Efnahagsreikningur Sparisjóðs Bolungarvíkur óx um 14,8% á árinu. Frá og með 1. janúar 2007 mun Sparisjóður Bolungarvíkur gera reikningsskil í samræmi við IFRS. Stofnfé nam 219 milljónum króna og jókst um 36,2% á árinu. Varasjóður nam 932 milljónum króna í árslok og jókst því um 20,2% á árinu. Aðalfundur Sparisjóðs Bolungarvíkur verður haldinn föstudaginn 2. mars n.k. Stjórn sjóðsins leggur til að greiddur verði 15% arður á uppreiknað stofnfé, auk þess sem nýttar verði heimildir laga um endurmat og viðbótarendurmat þannig að nafnávöxtun stofnfjár verði um 26,95%. Nánari upplýsingar veitir Ásgeir Sólbergsson, sparisjóðsstjóri, netfang: asgeir@spbol.is í síma 450-7100.
Sparisjóður Bolungarvíkur - Ársuppgjör 2006
| Quelle: Sparisjóður Bolungarvíkur