Hagnaður af rekstri ÍAV hf. árið 2006 að teknu tilliti til skatta nam 532 milljónum króna. EBITDA 1.163 m.kr. og veltufé frá rekstri 908 m.kr. Samstæða 2006 2005 2004 2003 2002 Rekstrarreikningur Rekstrartekjur 13.339.367 10.498.760 8.749.374 7.747.462 7.947.227 Rekstrargjöld (12.176.256) (9.240.258) (7.932.674) (7.115.869) (7.425.333) Hagnaður fyrir afskriftir 1.163.111 1.258.502 816.700 631.593 521.894 Afskriftir (273.904) (278.940) (275.954) (317.163) (300.650) Hagnaður fyrir fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) 889.207 979.562 540.746 314.430 221.244 Fjármunatekjur og (fjármagnsgjöld) (232.408) (90.744) (116.206) 463.478 36.224 Hagnaður fyrir áhrifa hlutdeildarfélaga 656.799 888.818 424.540 777.908 257.468 Hagnaður af rekstri hlutdeildarfélags 0 0 0 17.707 89.358 Hagnaður fyrir skatta 656.799 888.818 424.540 795.615 346.826 Reiknaður tekju- og eignarskattur (124.421) (160.113) (72.921) (133.419) (76.127) Hagnaður ársins 532.378 728.705 351.619 662.196 270.699 Efnahagsreikningur Eignir: Fastafjármunir 1.387.428 3.092.204 1.711.239 6.110.006 3.601.463 Veltufjármunir 7.257.874 5.563.610 6.807.466 6.928.829 5.227.996 Eignir alls 8.645.302 8.655.814 8.518.705 13.038.835 8.829.459 Eigið fé: Eigið fé samtals 2.640.525 2.862.910 3.124.204 7.010.591 3.309.063 Skuldir: Skuldbindingar 594.977 512.450 434.300 1.106.893 327.029 Langtímaskuldir 1.803.772 1.703.048 2.926.533 3.612.244 2.380.214 Skammtímaskuldir 3.606.027 3.577.407 2.033.668 1.309.107 2.813.153 Skuldir samtals 6.004.776 5.792.905 5.394.501 6.028.244 5.520.396 Skuldir og eigið fé samtals 8.645.301 8.655.815 8.518.705 13.038.835 8.829.459 Kennitölur Veltufé frá rekstri 908.297 1.199.516 566.985 507.517 551.472 Handbært fé frá rekstri (til rekstrar) 489.032 546.276 1.064.909 1.841.819 (421.730) Fjárfestingar í fastafjármunum 207.925 1.683.694 424.667 (1.409.388) 251.680 Veltufjárhlutfall 2,01 1,56 3,35 5,29 1,86 Eiginfjárhlutfall 30,5% 33,1% 36,7% 53,8% 37,5% Innra virði 1,99 2,16 2,36 5,30 2,50 Afkoma á hverja krónu nafnverðs 0,40 0,55 0,27 0,50 0,20 Ávöxtun eigin fjár 18,1% 24,6% 6,5% 19,8% 8,8% Meðalfjöldi starfsmanna 554 448 458 496 484 Á stjórnarfundi Íslenskra aðalverktaka hf. þann 28. mars 2007 var ársreikningur fyrir árið 2006 staðfestur. Ársreikningur Íslenskra aðalverktaka hf. hefur að geyma samstæðureikning félagsins og dótturfélaga þess. Rekstur á árinu 2006 Rekstrartekjur samstæðu Íslenskra aðalverktaka hf. námu 13.339 milljónum króna á árinu 2006. Hagnaður fyrir fjármagnsliði, skatta og afskriftir (EBITDA) var 1.163 milljónir króna. Afskriftir ársins námu 274 milljónir króna. Hagnaður fyrir fjármagnsliði og skatta nam 889 milljónum króna á árinu. Hagnaður félagsins fyrir skatta, að teknu tilliti til fjármagnsliða nam 657 milljónum króna, en fjármagnsliðir voru nettó neikvæðir um 232 milljónir króna. Að teknu tilliti til reiknaðra skatta nam hagnaður félagsins 532 milljónum króna á árinu 2006. Efnahagur Heildareignir Íslenskra aðalverktaka hf. og dótturfélaga námu 8.645 milljónum króna í lok desember 2006. Heildarskuldir samstæðunnar voru 6.004 milljónir króna og bókfært eigið fé þann 31. desember 2006 var 2.640 milljónir króna. Eiginfjárhlutfall var því 31%. Sjóðstreymi Veltufé samstæðu Íslenskra aðalverktaka hf. frá rekstri á árinu 2006 var 908 milljónir króna. Handbært fé í lok desember 2006 var 322 milljónir króna og veltufjárhlutfall var 2,01. Starfsemi ÍAV árið 2006 / framtíðarhorfur Nokkur samdráttur var í íbúðarbyggingum félagsins á árinu 2006, en sala íbúðarhúsnæðis gekk áfram vel. Tekjur félagsins jukust um 27% á milli ára og gert er ráð fyrir áframhaldandi vexti á starfsemi félagsins. Vel gekk að afla félaginu nýrra verkefna á árinu 2006 auk þess sem áfram var haldið með verkefni frá fyrra ári. Verkefnastaða félagsins er góð. Veruleg tækifæri eru til áframhaldandi sóknar fyrir félagið, bæði hvað varðar fjölþættingu í rekstri og aukinna umsvif í núverandi starfsemi. Byggingalóðir sem félagið hefur yfir að ráða eiga eftir að skapa félaginu áhugaverð verkefni á næstu árum. Stærsta einstaka verkefni félagsins um þessar mundir er bygging Tónlistar- og ráðstefnuhúss við Reykjavíkurhöfn, en uppbyggingin á tónlistarhúsinu og tengdum mannvirkjum er einhver umfangmesta uppbygging sem átt hefur sér stað hér á landi. Auk framangreindra verkefna vann ÍAV að mörgum öðrum spennandi verkefnum á árinu 2006, má þar nefna stækkun Lagafossvirkjunar, skrifstofubyggingu við Borgartún 26, bygging 14 hæða nýbyggingar við Grandhótel, byggingu Háskólatorgs við Háskóla Íslands auk fjölda íbúðarbygginga og annarra verkefna. Nýlega hefur félagið gengið frá verksamningum um byggingu 2. áfanga Skuggahverfis fyrir 101 Skuggahverfi ehf. ásamt því að semja við Eignarhaldsfélagið Mörkin ehf. / Nýsi hf. um fullnaðarfrágang tæplega 80 íbúða fjölbýlishúss við Suðurlandsbraut 58-62. Hjá Íslenskum aðalverktökum hf. og dótturfélögum þess störfuðu að meðaltali 554 starfsmenn á árinu 2006 auk starfsmanna undirverktaka sem skipta hundruðum.
Íslenskir aðalverktakar - Ársuppgjör 2006
| Quelle: Íslenskir aðalverktakar hf.