Leiðrétting: Íslensk þýðing. Fyrirsögn í frétt á að vera hluthafafundur ekki aðalfundur eins og var í fyrri frétt. Þriðjudaginn 22. maí 2007, kl. 18:00 síðdegis, er haldinn hluthafafundur í Alfesca hf., á Hótel Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavik. Til fundarins eru mættir 6 hluthafar og umboðsmenn hluthafa sem ráða yfir 61.32% hluta í félaginu. Ólafur Ólafsson stjórnarformaður félagsins setti fundinn og lagði til að Jón Ögmundsson verði kjörinn fundarstjóri. Tillagan samþykkt. Fundarstjóri lagði til að Antony Hovanessian verði kjörin fundarritari. Tillagan samþykkt. Fundarstjóri upplýsti að til fundarins hefði verði boðað með auglýsingu í tveim dagblöðum í samræmi við grein 4.4. í samþykktum félagsins og lýsti fundarstjóri fundinn því lögmætan hluthafafund í Alfesca hf. Á dagskrá fundarins eru eftirgreind mál: 1. Tillaga um heimild til stjórnar að auka hlutafé félagsins um allt að kr. 300.000.000 að nafnverði, á genginu 4,83, til að félagið geti staðið við efndir á áætlun um árangurstengdar launagreiðslur með tilheyrandi skilyrtum kauprétti fyrir lykilstarfsmenn félagsins. Hluthafar falli frá forkaupsrétti að hækkuninni ef reynir á hækkunarheimildina. 2. Önnur mál löglega upp borin. 1.Tillaga um breytingu á samþykktum: Fyrir fundinum lá eftirfarandi tillaga stjórnar um breytingu á samþykktum félagsins. “Hluthafafundur í Alfesca hf. sem haldinn er þriðjudaginn 22. maí 2007 samþykkir að heimila stjórn félagsins að auka hlutafé þess um allt að íkr. 300.000.000 -þrjúhundruðmilljónir 00/100- að nafnverði, á genginu 4,83, til að félagið geti staðið við efndir á áætlun um árangurstengdar launagreiðslur með tilheyrandi skilyrtum kauprétti fyrir lykilstarfsmenn félagsins. Hluthafar falla frá forkaupsrétti að hækkuninni ef reynir á hækkunarheimildina. Stjórninni er heimilt að nýta heimildina að hluta eða öllu leyti, í eitt eða fleiri skipti, og skal heimildin standa í fimm ár frá samþykkt hennar. Nýjir hlutir sem gefnir verða út á grundvelli heimildarinnar veita réttindi í félaginu frá skráningu þeirra.” Fundarstjóri gaf Árna Tómassyni stjórnarmanni orðið um tillöguna. Árni gerði grein fyrir samþykki stjórnarfunda þann 23 febrúar og aftur 10 maí s.l. á áætlun um árangurstengdar launagreiðslur með tilheyrandi kauprétti fyrir lykilstarfsmenn félagsins á hlutum í félaginu að uppfylltum skilyrðum um árangur þar sem bæði verður miðað við EBITDA markmið og gengi hlutabréf Alfesca á tilteknu tímabili. Hinar árangurstengdu launagreiðslur næðu til hluta í Alfesca allt að ISK 300.000.000 að nafnverði á genginu 4,83 með fyrirvara um að hluthafafundur veitti stjórn þær heimildir sem í tillögunni felast til útgáfu á nýju hlutafé til þess að hægt yrði að standa við ákvæði áætlunarinnar, reyndi á skilyrtan kauprétt lykilstarfsmanna. Að umræðum loknum var tillaga breytingu á samþykktum borin undir atkvæði hluthafa félagsins og var tillagan samþykkt af fulltrúum allra hluthafa sem farið var með atkvæði fyrir á fundinum. 2. Önnur mál. Enginn tók til máls undir þessum lið. Fundarstjóri óskaði eftir heimild fundarins til að fela fundarstjóra og fundarritara að ganga frá fundargerð. Tillagan samþykkt. Fundi var slitið kl. 18:30.
Hluthafafundur haldinn 22. maí 2007 Leiðrétting: Frétt send 2007-05-23 11:38:30
| Quelle: Alfesca hf.