2006


Norðurþing áður Húsavíkurbær

Ársreikningur Norðurþings fyrir árið 2006 var lagður fram til kynningar í
byggðarráði 10. maí s.l.   Ársreikningurinn var tekinn til fyrri umræðu í
sveitarstjórn þann 15. maí og er gert ráð fyrir að seinni umræða fari fram þann
19. júní n.k. 

Rekstur sveitarfélagsins Norðurþings er nýr.  Fjögur sveitarfélög þ.e.,
Húsavíkurbær, Kelduneshreppur, Öxarfjarðarhreppur og Raufarhafnarhreppur
sameinuðust 11. júní 2006  eftir almenna kosningu þar um.  Sameining þessara
sveitarfélaga gengur vel,  enn er unnið við útfærslur, verkefnaskiptingu,
aðlögun upplýsingakerfa og stefnumótun.  Afkoma Norðurþings er í megindráttum
betri en áætlanir gerður ráð fyrir. 

Ársreikningur þessi fyrir hið nýja sveitarfélag innfelur rekstur Húsavíkurbæjar
allt árið 2006 og rekstur hinna sveitarfélaganna 3ja frá 11. júní 2006 til
áramóta. 

Rekstrartekjur Norðurþings, samstæðunnar, námu  1.922. mkr. og rekstrargjöld 
1.846 mkr.  Fjármagnsliður var neikvæður um 379 mkr.  Rekstrarniðurstaða ársins
varð neikvæð um 187 mkr.  Í áætlun var hinsvegar gert ráð fyrir neikvæðri
rekstrarniðurstöðu upp á 89 mkr. 

Peningalegar eignir Norðurþings í árslok námu  1.022 mkr. og skuldir samtals
4.440 mkr. að meðtöldum lífeyrisskuldbindingum.  Skuldir umfram peningalegar
eignir námu því 3. 418 mkr. samanborið við 2. 927 mkr. í árslok 2005. 
Eiginfjárhlutfall í árslok er 22,9% og bókfært eigið fé 1.307 mkr. 

Velturfé frá rekstri nam 272 mkr. Samanborið við 141 mkr. skv. áætlun.  

Fjárfestingahreyfingar námu 138 mkr.

Ný lán voru tekin fyrir 208 mkr. en afborganir námu 507 mkr.
Heildarlaunagreiðslur og launatengd gjöld Norðurþings námu 901 mkr. að
meðtöldum breytingum á lífeyrisskuldbindingum og var starfsmannafjöldi í árslok
187 í 148 stöðugildum. 

Norðurþing tók um síðustu áramót við rekstri Félags- og skólaþjónustu
Þingeyinga um leið var nafni þjónustunnar breytt í Fjölskylduþjónusta
Þingeyinga. 

Ársreikningurinn í heild sinni verður birtur á heimasíðu Norðurþings

Nánari upplýsingar veitir Bergur Elías Ágústsson sveitarstjóri og Guðbjartur
Ellert Jónsson, frkv.stj. Fjármála- og stjórnsýslusviðs í síma 464 6100

Anhänge

lykiltolur.pdf noruring - arsreikningur samstu 2006.pdf