- Jarðboranir stofna fyrirtækið Hekla Energy í Þýskalandi


- Thor Növig ráðinn framkvæmdastjóri -

Jarðboranir hf. hafa stofnað dótturfyrirtækið Hekla Energy GmbH í Þýskalandi og
verða höfuðstöðvar nýja fyrirtækisins í Celle í Neðra-Saxlandi. Stofnun Hekla
Energy er liður í að framfylgja stóraukinni áherslu Atorku og Jarðborana á
útrás sérhæfðrar þekkingar á erlenda markaði. Í verkahring Hekla Energy GmbH
verða borframkvæmdir í Þýskalandi. 

Nýlega var samið við þýska fyrirtækið Herrenknecht Vertical GmbH um kaup og
kauprétt á nýrri gerð hátæknivæddra stórbora sem eru sérstaklega hannaðir til
að afla jarðhita á miklu dýpi. Fyrsti borinn verður afhentur Hekla Energy nú í
september og þegar uppsetningu, prófunum tækjabúnaðar og öðrum undirbúningi
lýkur er fyrirhugað að fyrstu borframkvæmdir á vegum Hekla Energy hefjist í
Suður-Þýskalandi. Mikil vakning er um nýtingu umhverfisvænnar orku í heiminum
og beinist athyglin æ meir að jarðvarma. Vænleg sóknarfæri eru fyrir Hekla
Energy í Þýsklandi og víðar og standa viðræður yfir um frekari verkefni. 

Þrautreyndur stjórnandi
Thor Növig hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri Hekla Energy GmbH frá og með 1.
september n.k. Növig hefur 30 ára reynslu á sviði boriðnaðar. Hann er með B.Sc.
gráðu í vélaverkfræði frá Tækniháskólanum - NTH í Niðarósi, Noregi, og M.Sc.
gráðu í jarðolíuverkfræði frá Tækniháskólanum í Clausthal í Þýskalandi og var
aðstoðarprófessor við Tækniháskólanum í Clausthal. Növig hefur veitt þýska
fyrirtækinu ITAG Tiefbohr GmbH forystu í alls 15 ár og undir hans stjórn hefur
fyrirtækið skipað sér í fremstu röð borverktaka í Evrópu í krafti frumkvæðis í
borhönnun og mikillar áherslu á gæði. 

Að mati Bents S. Einarssonar, forstjóra Jarðborana, er Növig rétti maðurinn til
að veita Hekla Energy forystu. “Það er mikill happafengur að fá Növig í okkar
raðir og við lítum á tilkomu hans sem mikilvægt skref í uppbyggingu á
starfseminni ytra. Növig er mjög virtur maður á sínu sviði, yfirburða þekking
hans, reynsla og stjórnunarhæfni réðu úrslitum um ráðninguna.“ 

Spennandi framtíð
Növig hlakkar til að takast á við nýja starfið. “Sem sérþekkingarfyrirtæki á
sviði jarðvarma mun Hekla Energy gegna mikilvægu hlutverki innan evrópsks
boriðnaðar í náinni framtíð. Ég hef miklar væntingar varðandi framtíðarsýn
fyrirtækisins og starf mitt. Hekla Energy hefur mjög álitlega vaxtarmöguleika
og að baki býr metnaður til að verða í forystu meðal borverktaka á sviði
jarðvarma og skyldra verkefna. Öflug sérþekking og fjárhagsleg geta Jarðborana
til að fjárfesta í nýjustu tækni mun skipta sköpum um vöxt Hekla Energy á hinum
ört stækkandi markaði fyrir nýja og endurnýjanlega orku.” 

Um Jarðboranir
Jarðboranir eru í eigu Atorku Group. Jarðboranir eru þekkingar- og
hátæknifyrirtæki sem annast framkvæmdir á alþjóðlegum vettvangi og felst
starfsemin einkum í nýtingu auðlinda í jörð til framleiðslu á  endurnýjanlegri
orku. Jarðboranir eru jafnframt stærsta borfyrirtæki á heimsvísu sem sérhæfir
sig í jarðhita. 

Um Atorku
Atorka Group er fjárfestingarfélag sem er skráð í OMX Nordic Exchange á
Íslandi. Atorka fjárfestir í traustum fyrirtækjum sem eru í atvinnugreinum sem
hafa sérstök tækifæri til vaxtar á heimsmarkaði. Í fjárfestingum sínum leggur
Atorka áherslu á að rekstur fyrirtækjanna sé öflugur með sterkt sjóðstreymi,
sterkt stjórnendateymi, starfi við góð skilyrði til verulegs innri og ytri
vaxtar og hafi tækifæri til verðmætaaukningar. 

Nánari upplýsingar veitir Bent Einarsson forstjóri Jarðborana síma 8585210
GlobeNewswire