Eyjamenn ehf. hafa í dag, 23. júlí kl. 13:49, keypt 143.830 hluti í Vinnslustöðinni hf. á genginu 4,6 en um er að ræða hluti þeirra sem þegar hafa tekið yfirtökutilboði Eyjamanna ehf. í Vinnslustöðina hf. Uppgjör fór fram í dag. Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson er stjórnarformaður og einn eiganda Eyjamanna ehf. og framkvæmdastjóri útgefanda. Haraldur Gíslason er einn eigenda Eyjamanna ehf. og situr í stjórn útgefanda. Kristín Elín Gísladóttir er einn eiganda Eyjamanna ehf. og situr í stjórn útgefanda sem varamaður. Samtals eftir viðskiptin á Eyjamenn ehf. 143.830 hluti og aðilar sem standa að því félagi eiga 782.971.430 hluti eftir viðskiptin.
- Yfirtökutilboð Eyjamanna ehf. í Vinnslustöðina hf. - kaup á hlutabréfum þeirra sem samþykkt hafa tilboðið
| Quelle: Vinnslustöðin hf.