Tessera Holding ehf. og stjórn Mosaic Fashions hf. hafa ákveðið að aðrir hluthafar í Mosaic Fashions hf. en samstarfsaðilar um yfirtökutilboð í félagið, sem hófst 9. júlí sl., skuli sæta innlausn Tessera Holding ehf. á hlutum sínum, sbr. 1. mgr. 47. gr. laga nr. 33/2003. Stjórn Mosaic Fashions hf. hefur jafnframt ákveðið að óska eftir afskráningu á hlutum félagsins úr OMX Norrænu kauphöllinni Íslandi. Farið verður fram á afskráningu þegar innlausn hluta er lokið. Í lok dags þann 16. ágúst 2007 áttu Tessera Holding ehf. og samstarfsaðilar samtals 2.895.908.978 hluti í Mosaic Fashions ehf. eða 99,8% af hlutafé félagsins. Innlausnarverðið er 17,5 kr. fyrir hvern hlut, sem er sama verð og Tessera Holding ehf. bauð hluthöfum í yfirtökutilboðinu. Hluthöfum, sem eiga hluti sem falla undir innlausnina, verður send tilkynning á næstu dögum varðandi innlausnina ásamt framsalseyðublaði. Innlausnarverðið verður greitt í síðasta lagi 5 vikum frá dagsetningu tilkynningar um innlausn. Hægt verður að nálgast tilkynninguna og framsalseyðublaðið hjá Kaupþingi banka hf., Borgartúni 19, 105 Reykjavík. Frekari upplýsingar veitir Jessica Wilks, forstöðumaður fjárfestatengsla, í síma +44 207 452 1122.