Lykiltölur, samstæðureikningur: • Tap eftir skatta í samstæðureikningum Atorku Group hf., fyrstu 6 mánuði ársins var 226 milljónir króna. • Tap á öðrum ársfjórðungi var 685 milljónir króna. • Tekjur á fyrri helmingi ársins voru 39,1 milljarðar króna. • Heildareignir samstæðunnar í lok júní voru 99 milljarðar króna. • Eigið fé var 9,6 milljarðar í lok júní. • Um 5 milljarða krónu söluhagnaður af sölu Jarðborana kemur fram á þriðja ársfjórðungi í samstæðureikningi. • EBITDA félaga í plastiðnaði þ.m.t. Promens á fyrstu 6 mánuðum ársins var 3.253 milljónir króna. • EBITDA félaga í orku- og verktakaiðnaði þ.m.t. Jarðboranir á fyrstu 6 mánuðum ársins var 874 milljónir króna. Lykiltölur móðurfélags: • Hagnaður eftir skatt á fyrstu sex mánuðum ársins var rúmlega 6 milljarðar króna. • Hagnaður eftir skatt á öðrum ársfjórðungi var rúmlega 3 milljarðar króna. • Heildareignir í lok júní voru 54,8 milljarðar króna. • Eigið fé var 21,5 milljarðar króna í lok júní. • Arðsemi eigin fjár nam 70% á ársgrundvelli. • Eiginfjárhlutfall er 39% • Hagnaður á hlut á fyrstu 6 mánuðum ársins nam 1,91 Helstu viðburðir • Allur eignarhlutur í Jarðborunum seldur til Geysir Green Energy. Heildarvirði (Enterprise Value) sölunnar var 17,7 milljarðar króna. Innleystur hagnaður frá upphafi fjárfestingarinnar er um 11 milljarðar króna þar af á fjórða milljarð á öðrum ársfjórðungi í móðurfélagsreikningi. • Atorka gerðist kjölfestufjárfestir í Geysir Green Energy og keypti 32% hlut. Kaupverð voru rúmir 7 milljarðar króna. • Jarðboranir stofnuðu Hekla Energy í Þýskalandi til að mæti aukinni útrás félagsins. Hekla Energy mun sjá um borframkvæmdir í Þýskalandi og víðar í Evrópu. • Jarðboranir stórefldu borflota sinn og festu kaup á 3 hátæknivæddum stórborum fyrir um 6 milljarða króna til að annast borverkefni erlendis. • Nýtt skipurit Promens innleitt í júlí til að styðja við frekari samþættingu og vöxt. • Promens lauk yfirtöku á plastframleiðslufyrirtækinu Dekoplast í Frakklandi sem framleiðir umbúðir fyrir snyrtivöru- og lyfjaframleiðendur. • Eignarhlutur í Amiad var aukinn í 20%. Amiad Filtration er leiðandi á alþjóðamarkaði í framleiðslu á vatnshreinsibúnaði. Mikill vöxtur er á þessum markaði og er vaxandi eftirspurn eftir hreinu vatni. • Þrjú fyrirtæki á heilbrigðismarkaði, Icepharma, Parlogis og Ilsanta voru seld. Magnús Jónsson forstjóri Atorku; „Afkoman á fyrstu 6 mánuðum ársins er mjög góð. Vel heppnuð sala á Jarðborunum er til vitnis um árangursríka framkvæmd á fjárfestingarstefnu félagsins. Með sölunni innleysti Atorka verulegan hagnað og fjárhagsstaða félagsins er sterk. Við erum orðin kjölfestufjárfestir í Geysir Green Energy og teljum það vera mjög spennandi fjárfestingarkost. Í Geysi Green Energy sjáum við mikil tækifæri til að skapa veruleg verðmæti með þátttöku í uppbyggingu þess. Önnur fjárfestingarverkefni Atorku ganga vel, uppbyggingin á Promens gengur vel og unnið er að undirbúningi fyrir skráningu félagsins. Fjárfestingargeta okkar er mikil og félagið er í góðri stöðu til að nýta sér markaðsaðstæður sem nú eru fyrir hendi.“ Nánari upplýsingar veita; Magnús Jónsson, forstjóri í síma 840 6240 Valdís Arnardóttir, kynningarstjóri í síma 840 6217 Reikninga Atorku Group má finna á heimasíðu félagsins www.atorka.is Um Atorku Group Atorka er fjárfestingarfélag sem styður framsækin fyrirtæki, sem njóta góðs af hnattrænni þróun, til leiðandi hlutverks á heimsvísu. Í fjárfestingum sínum leggur Atorka áherslu á að rekstur fyrirtækjanna sé öflugur og hafi sterkt stjórnendateymi og að fyrirtækið starfi við góð skilyrði til verulegs innri og ytri vaxtar. Gert er ráð fyrir að tímalengd verkefnanna sé um 3-5 ár og að mikil tækifæri séu til vaxtar og verðmætaaukningar.