Alfesca birtir ársuppgjör félagsins fyrir fjárhagsárið sem lauk 30. júní sl. mánudaginn 3. september eftir lokun markaða. Þetta er breyting frá fyrri dagsetningu sem var 31. ágúst. Fundur fyrir fjárfesta, markaðsaðila og fjölmiðla verður haldinn þar sem Xavier Govare forstjóri Alfesca mun kynna uppgjörið. Fundurinn verður haldinn á: Hótel Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavik, þriðjudaginn 4. september kl. 16:30 Skráning hefst kl. 16 og boðið verður upp á veitingar. Að fundi loknum geta gestir bragðað á vörum sem Alfesca framleiðir. Fundinum verður varpað beint á Internetinu. Hægt verður að horfa á netvarpið á heimasíðu félagsins www.alfesca.com Aðalfundur Alfesca verður haldinn mánudaginn 24. september en áður boðuð dagsetning var 18. september. Frekari upplýsingar um aðalfund félagsins verða birtar síðar. Nánari upplýsingar má fá hjá: Antony Hovanessian, Business Development Director +33 (0) 5 58 56 74 74 ah@alfesca.com Hrefnu Ingólfsdóttur, Forstöðum. samskiptasviðs +354 477 7000 hi@alfesca.com