Árshlutareikningur félagsins er nú í fyrsta sinn gerður í samræmi við alþjóða reikningsskilastaðla IFRS. Verslunarmiðstöðin er nú flokkuð sem fjárfestingareign og er hún metin á gangverði í samræmi við IAS 40. Eignin er metin með því að núvirða frjálst sjóðsflæði til framtíðar. Matið var gert í fyrsta sinn 1. janúar 2006 en skv. niðurstöðum þess, hækkar fjárfestingaeign um 4.335 mkr. og skattáhrifin eru 780mkr. Breyting á eigin fé við upptöku IFRS 01.01.2006 er því hækkun um 3.555 mkr. Hagnaður Smáralindar ehf. fyrstu 6 mánuði ársins nam 735 mkr. Hagnaður fyrir afskriftir og fjármagnsliði (EBITDA) nam 380 mkr. sem er um 5% aukning frá sama tímabili síðasta árs. Veltufé frá rekstri nam 231 mkr. og handbært fé frá rekstri nam 216 mkr. Heildareignir félagsins námu 14.766 mkr. þann 30.06.2007 en þær námu 15.247 mkr. skv. árshlutauppgjöri 2006. Eigið fé félagsins í lok tímabilsins var 6.282 mkr. og eiginfjárhlutfall félagsins 55 % að teknu tilliti til víkjandi láns frá móðurfélaginu. Nánari upplýsingar veitir: Helgi M.Magnússon, framkvæmdastjóri Smáralindar ehf. sími 528-8000
2007
| Quelle: Eignarhaldsfélagið Smáralind ehf.