Leiðrétting. Villan var í yfirliti efnahagsreiknings en rekstrarreikningur var réttur sem og skýringar. Villan hafði áhrif á tölur í fréttatilkynningu einnig og er hún því einnig birt aftur. Samson er eignarhaldsfélag og er tilgangur þess almenn fjárfestingastarfsemi og skyldur rekstur. Félagið er eigandi tveggja dótturfélaga og er því birtur samstæðureikningur félagsins og dótturfélaga þess. Auk móðurfélagsins eru í samstæðunni félögin Samson Properties ehf. sem er fasteignafélag sem sérhæfir sig í rekstri, þróun og fjárfestingum í fasteignum og fasteignatengdum verkefnum í Evrópu. Einnig er fjárfestingafélagið Ópera fjárfestingar ehf. hluti af samstæðunni en það félag er eigandi að um 26% eignarhluta í Fjárfestingarfélaginu Gretti hf. Árshlutareikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla og er það í fyrsta sinn sem samstæðan birtir reikning sinn með þeim hætti. Árshlutareikningar samstæðunnar hafa undanfarin ár verið gerðir í samræmi við lög um ársreikninga og íslenskar reikningsskilavenjur. Innleiðing alþjóðlegu reikningsskilastaðlanna hafði óveruleg áhrif á fjárhagsstöðu samstæðunnar og ekki voru gerðar breytingar á samanburðarfjárhæðum eigin fjár og afkomu samstæðunnar eins og þær voru birtar samkvæmt íslenskum reikningsskilavenjum fyrir árið 2006. Eignarhluti móðurfélagsins í Landsbanka Íslands hf. var 4.559 m.kr. að nafnverði í lok tímabilsins og nam hann 41,37% af heildarhlutafé bankans. Markaðsverð eignarhlutans nam 173.700 m.kr. í lok tímabilsins en bókfært virði hans er 73.081 m.kr. en beitt er hlutdeildaraðferð við bókun eignarhlutans. Gengi hlutafjár í Landsbanka Íslands hf. hækkaði um 43,8% á fyrri hluta ársins 2007. Tap félagsins á tímabilinu 1. janúar til 30. júní 2007 nam 3.209 m.kr. samanborið við 12.184 m.kr. hagnað á sama tíma í fyrra. Þar sem beitt er hlutdeildaraðferð við að gera grein fyrir eignarhluta félagsins í Landsbanka Íslands hf. færast einungis 10.912 m.kr. til tekna þó markaðsvirði eignarhluta Samson ehf. hafi aukist um 52.885 m.kr. á tímabilinu. Félagið færir afleiðusamninga á markaðsvirði og því kemur fram gjaldfærsla að fjárhæð 14.658 m.kr. sem að stórum hluta er vegna styrkingar íslensku krónunnar á tímabilinu. Sem alþjóðlegt fjárfestingafélag beitir félagið gengisvörnum til að styðja við eign félagsins í Landsbanka Íslands hf. og draga úr gengisáhrifum á eignir félagsins í evrum talið. Þar sem félagið beitir hlutdeildaraðferð á eign sína í bankanum er hækkun á markaðsverði eignarinnar ekki færð að fullu á móti þessu tapi. Bókfært eigið fé í lok tímabilsins nam 25.622 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi og lækkaði það um 12,8% frá árslokum 2006. Ef eignarhlutur félagsins í Landsbanka Íslands hf. væri færður til eignar á markaðsverði væri eigið fé félagsins 108.129 m.kr. að teknu tilliti til tekjuskattsáhrifa og eiginfjárhlutfall þá 42,3%. Í árslok 2006 var eigið fé félagsins skv. sömu aðferð 73.063 m.kr. og hefur því aukist um 48% á tímabilinu.
2007 - Leiðrétting - Frétt send út 2007-08-30 11:17:05 CET
| Quelle: Samson eignarhaldsfélag ehf.