Mjög góð afkoma á fjárhagsárinu 2006/07 Sala nam 616,9 milljónum evra - jókst um 11% EBITDA varð 53,9 milljónir evra - jókst um 23% Nettóhagnaður nam 22,4 milljónum evra - jókst um 87% Árið í hnotskurn Sala FY 2007: €616,9 m, 11% hækkun Q4 2007: €144,3 m, 23% hækkun EBITDA FY 2007: €53,9 m, 23% hækkun Q4 2007: €8,4 m, 30% hækkun Nettóhagnaður FY 2007: €22,4 m, 87% hækkun Q4 2007: €3,4 m, hækkun Veltufé frá rekstri: €44,5 m, umtalsverð hækkun eða um 46% Hráefniskostnaður Verð á laxi og rækju stöðugt. Efling Alfesca Samþætting Adrimex við rækju- og skelfiskstoð félagsins og samþætting LTG við smurrréttaframleiðsluna gengur vel. Lykilverkefni Endurfjármögnun félagsins lokið. Leitað er tækifæra til að styrkja samstæðuna og efla vöxt hennar. Xavier Govare, CEO of Alfesca, said: „Það er með ánægju að við kynnum mjög góða afkomu Alfesca á fjárhagsárinu 2006/2007 en hún er í samræmi við meginmarkmið okkar. Við höfum náð þeim markmiðum sem sett voru um reksturinn. Í fyrsta lagi byggist starfsemi félagsins upp í kringum fjórar meginstoðir; (I) reyktan lax og aðrar fiskafurðir, (II) foie gras (andalifur) og andakjöt, (III) blini (hveitipönnukökur) og smurvörur og (IV) rækjur og annar skelfiskur. Þessi skipting eftir helstu framleiðsluvörum hefur gert okkur kleift að fá betri yfirsýn yfir kjarnahæfni félagsins, auka skilvirkni og ná fram samlegð. Í öðru lagi settum við okkur markmið um að styrkja reksturinn og efla þar sem þess var þörf. Kaupin á Adrimex og LTG á árinu staðfestu áform okkar um markvissan vöxt kjarnastarfseminnar og að styrkja stöðu okkar á völdum mörkuðum. Í þriðja lagi stefndum við á öflugan innri vöxt á grundvelli hagfelldra markaðsskilyrða - áherslu á gott samband við viðskiptavini, öfluga vöruþróun og vöxt og viðhald vörumerkja okkar. Fjórða markmiðið var öflugt kostnaðareftirlit, sérstaklega varðandi orkukostnað og hráefniskostnað, auk þess að vega upp á móti verðhækkunum með samblandi af framvirkum samningum (hedging), lækkun rekstrarkostnaðar og völdum verðhækkunum. Loks settum við okkur markmið um að fjárfesta í framleiðslutækjum samstæðunnar og auka sjálfvirkni, framleiðslu og framleiðni í þeim tilgangi að styðja við arðsaman vöxt. Góður árangur staðfestir helstu styrkleika samstæðunnar: sterkt stjórnendateymi, öflugan rekstur, stefnumörkun og skynsama fjármálastjórn. Alfesca skilar góðri afkomu þar sem sala jókst um 11% og varð 616,9 milljónir evra. Arðsemi hefur um leið aukist þrátt fyrir kostnaðarhækkanir en nettóhagnaður nam 22,4 milljónum evra. Stefna okkar er að skila árangri og þar sem við byggjum á sterkum grunni erum við sannfærð um hæfni félagsins til innri vaxtar og, þegar réttu tækifærin gefast, ytri vaxtar.”