Eftirtaldir aðilar gáfu kost á sér til setu í stjórn Alfesca hf. en stjórnarkjör fer fram á aðalfundi félagsins sem haldinn verður 24. september 2007. Framboð til stjórnar Alfesca hf: Árni Tómasson, Hraunbraut 20, Kópavogi Bill Ronald, The Causeway, Hibbert Road, Bray, Berkshire, UK Guðmundur Ásgeirsson, Barðaströnd 33, Seltjarnarnes Hartmut M. Krämer, Schulstrasse 2, Dusseldorf, Germany Ólafur Ólafsson, Huldubraut 28, Kópavogi Varamaður: Kristinn Albertsson, Grófarsmára 15, Kópavogi Ekki hafa borist fleiri framboð til stjórnar og varastjórnar Alfesca hf. Tillaga um laun stjórnar. Aðalfundur Alfesca hf. haldinn 24. september 2007 samþykkir að stjórnarlaun verði sem hér segir: Fyrir tímabilið 1. júlí 2007 til 30. júní 2008: Stjórnarlaun verði EUR 40.000. Stjórnarformaður fái sem nemur þreföldum stjórnarlaunum en varaformaður sem nemur tvöföldum. Þóknun fyrir fundarsetu í undirnefnd á tímabilinu er EUR 20.000 fyrir nefndarmann.