24. september 2007 - Leiðrétting - Frétt send út 2007-09-25 11:44:39 CET


Leiðrétting: Íslenskri frétt bætt við.



Aðalfundur Alfesca hf. var haldinn Mánudaginn 24. september 2007, kl. 16.30 á
Hótel Nordica, Suðurlandsbraut 2, Reykjavík, Íslandi. 

Fundargerð fundarins er svohljóðandi:

FUNDARSETNING OG SKIPUN FUNDARSTJÓRA

Ólafur Ólafsson, stjórnarformaður Alfesca hf setti fundinn og lagði til að
Baldvin Björn Haraldsson, lögmaður hjá BBA Legal yrði kosinn til að stjórna
fundinum. 

Tillaga stjórnarformannsins var samþykkt samhljóða.

Á fundinn voru mættir samanlagt 6 hlutahafar og fulltrúar hluthafa eins og
kemur fram í viðhengdum lista, sem eiga samanlagt 63.45% útgefins hlutafjár í
félaginu. 

BOÐUN FUNDAR OG TILSKILINN MEIRIHLUTI

Baldvin Björn Haraldsson tók við stjórn fundarins og lagði til að Antony
Hovanessian yrði kosinn fundarritari. 

Tillaga fundarstjóra var samþykkt einróma.

Fundarstjóri gerði grein fyrir að til fundarins hefði verið boðað með
auglýsingum í Morgunblaðinu og Viðskiptablaðinu þann 7. september 2007. 
Fundarstjóri lýsti yfir að til fundarins hefði verið boðað með lögmætum hætti
og í samræmi við grein 4.4 í samþykktum félagsins. 

DAGSKRÁ

Dagskrá fundarins er eftirfarandi:

1.  Skýrsla stjórnar um starfsemi og afkomu félagsins síðasta fjárhagsárs sem
    endaði 30. júní 2007. 

2.  Ársreikningur félagsins fyrir síðastaliðið fjárhagsár sem endaði 30. júní
    2007, ásamt skýrslu endurskoðenda. 

3.  Ákvörðun um greiðslu arðs og meðferð hagnaðar síðastliðins reikningsárs.

4.  Kosning endurskoðenda.

5.  Kjör stjórnar til eins árs.

6.  Ákvörðun um laun stjórnarmanna.

7.  Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins.

8.  Tillaga um að heimila félaginu að kaupa eigin hlutabréf.

9.  Tillögur um breytingar á samþykktum.

10. Önnur mál.

SAMÞYKKTIR FUNDARINS

1.  Skýrsla stjórnar um starfsemi og afkomu félagsins síðasta fjárhagsárs sem
    endaði 30. júní 2007. 

    Skýrslu stjórnar kynnti Ólafur Ólafsson og Xavier Govare kynnti afkomu
    félagsins. 

2.  Ársreikningur félagsins fyrir síðastaliðið fjárhagsár sem endaði 30. júní
    2007, ásamt skýrslu endurskoðenda 

    Ársreikningur félagsins fyrir síðastaliðið fjárhagsár sem endaði 30. júní
    2007, ásamt skýrslu endurskoðenda var borinn undir atkvæði fundarins af
    fundarstjóra og var hann einróma samþykktur af hluthöfum. 

3.  Greiðsla arðs og meðferð hagnaðar síðastliðins reikningsárs

    Fundarstjóri bar upp tillögu um að ekki yrði greiddur út arður af hagnaði
    félagsins vegna síðastliðins reikningsárs. 

    Tillagan var samþykkt einróma af hluthöfum.

4.  Kosning endurskoðenda

    Fundarstjóri bar upp tillögum um að Deloitte hf. yrði kosið sem
    endurskoðandi félagsins. 

    Tillagan var samþykkt einróma af hluthöfum.

5.  Kjör stjórnar til eins árs

    Fimm aðilar buðu sig fram með lögmætum hætti til stjórnarsetu í félaginu og
    einn aðili bauð sig fram til setu í varastjórn.  Frambjóðendur voru: 

        a.	Árni Tómasson,
        b.	Bill Ronald
        c.	Guðmundur Ásgeirsson
        d.	Hartmut M. Krämer
        e.	Ólafur Ólafsson

    Til vara:	Kristinn Albertsson

    Þar sem engin önnur framboð bárust til stjórnarsetu í félaginu, voru
    ofangreindir frambjóðendur sjálfkrafa kjörnir til eins árs setu í stjórn
    félagsins. 

6.  ÁKVÖRÐUN UM LAUN STJÓRNARMANNA

    Eftirfarandi tillaga um laun stjórnarmanna var lögð fram og samhljóða
    samþykkt af hluthöfum. 

    Fyrir tímabilið 1. júlí 2007 til 30. júní 2008: Stjórnarlaun verði EUR
    40.000. Stjórnarformaður fær sem nemur þreföldum stjórnarlaunum en
    varaformaður sem nemur tvöföldum.  Þóknun fyrir fundarsetu í undirnefnd á  
    tímabilinu er EUR 20.000 fyrir nefndarmann. 

7.  TILLAGA STJÓRNAR UM STARFSKJARASTEFNU FÉLAGSINS

    Tillaga um starfskjarastefnu félagsins, sbr. viðauki 1 við fundargerðina,
    var borin undir fundinn og samþykkt samhljóða af hluthöfum 

8.  TILLAGA UM AÐ HEIMILA FÉLAGINU AÐ KAUPA EIGIN HLUTABRÉF

    Tillaga var borin upp um að heimila félaginu að kaupa allt að 10% af útgefnu
    hlutafé félagsins á verði sem ekki má víkja meira en 5% frá markaðsverði
    hluta félagsins. 

    Hluthafar samþykktu tillöguna samhljóða.

9.  TILLÖGUR UM BREYTINGAR Á SAMÞYKKTUM FÉLAGSINS

    Bornar voru upp tillögur stjórnar félagsins um breytingar á samþykktum
    félagins. 

    Tillögurnar að breytingum á samþykktunum, eins og þær eru settar fram í
    viðauka 2 við fundargerðina, samþykktu hluthafar samhljóða.
 
10. ÖNNUR MÁL

    Önnur mál voru ekki rædd á fundinum.

    FUNDARGERÐ

    Fundarstjóri lagði til að honum og fundarritara yrði falið að ganga frá
    fundargerð fundarins.  Tillagan var samþykkt. 

    FUNDARSLIT

    Fundarstjóri sleit fundinum kl. 17:30.
GlobeNewswire