Stjórnir Byrs sparisjóðs og Sparisjóðs Norðlendinga hafa skrifað undir áætlun um samruna sparisjóðanna og miðast hann við 1. júlí 2007. Gert er ráð fyrir að hlutur stofnfjáreigenda í Byr sparisjóði verði 90,5% í sameinuðum sjóði og hlutur stofnfjáreigenda í Sparisjóði Norðlendinga verður 9,5%. Til að framangreint hlutfall náist verður stofnfé í Sparisjóði Norðlendinga aukið um krónur 234.860.000 áður en til samrunans kemur. Markmiðið með samrunanum er að styrkja stöðu sparisjóðanna í harðnandi samkeppni á fjármálamarkaði til hagsbóta fyrir viðskiptavini, starfsfólk og stofnfjáreigendur. Íslenskur fjármálamarkaður hefur undanfarin ár einkennst af mikilli grósku og vexti. Fjármálafyrirtæki hafa vaxið og dafnað og samkeppni hefur aukist mikið. Sameining sparisjóðanna eru viðbrögð við þessari þróun. Með samrunanum verður til stærri og öflugri eining sem er vel í stakk búin til að takast á við ný og krefjandi verkefni. Með sameiningunni aukast möguleikar til framþróunar og vaxtar og hefur sameinaður sparisjóður sterkari stöðu til sóknar. Byr sparisjóður er vaxandi fyrirtæki sem býður einstaklingum og fyrirtækjum faglega ráðgjöf og persónulega þjónustu í fjármálum. Byr sparisjóður varð til við sameiningu Sparisjóðs vélstjóra og Sparisjóðs Hafnarfjarðar árið 2006. Sameining Byrs sparisjóðs og Sparisjóðs Kópavogs hefur verið samþykkt af stjórnum og stofnfjáraðilum sjóðanna og býður samþykkis Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins. Sparisjóður Norðlendinga var stofnaður þann 30. júní 1997 með samruna Sparisjóðs Akureyrar og Arnarneshrepps og Sparisjóðs Glæsibæjarhrepps. Hann sérhæfir sig í þjónustu við einstaklinga og fyrirtæki á Norðurlandi og hefur vaxið mikið á undanförnum árum. Með sameiningu opnast tækifæri fyrir efldan sparisjóð að auka þjónustu sína og taka þátt í stærri verkefnum við uppbyggingu öflugs atvinnulífs á Norðurlandi. Samruni Byrs sparisjóðs og Sparisjóðs Norðlendinga er háður samþykki stofnfjáreigenda sjóðanna, Fjármálaeftirlitsins og Samkeppniseftirlitsins. Frekari upplýsingar veita: Ragnar Z. Guðjónsson, sparisjóðsstjóri BYRS - sparisjóðs sími: 575 4000 netfang: RagnarZG@byr.is Örn Arnar Óskarsson, sparisjóðsstjóri Sparisjóðs Norðlendinga sími: 460 2500 netfang: orn@spnor.is
- Skrifað undir samrunaáætlun BYRS og Sparisjóðs Norðlendinga
| Quelle: Byr sparisjóður