Icelandic Group birtir uppgjör sitt fyrir fyrstu níu mánuði ársins 2007 þann 16. nóvember. Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn föstudaginn 16. nóvember á skrifstofu félagsins að Borgartúni 27, 3ju hæð. Björgólfur Jóhannsson, forstjóri Icelandic Group, mun kynna afkomu félagsins og svara spurningum. Kynningarfundurinn hefst kl. 16:30. Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu Icelandic Group, www.icelandic.is, og á heimasíðu OMX Nordic Exchange, www.omxgroup.com/nordicexchange.