Helstu niðurstöður úr 9 mánaða uppgjöri Atorku Group hf.:
Samstæðureikningur:
• Hagnaður eftir skatta í samstæðureikningum Atorku Group hf., fyrstu 9
mánuði ársins var 2,5 milljarðar króna.
• Hagnaður á þriðja ársfjórðungi var 2,7 milljarðar króna.
• Tekjur á fyrstu 9 mánuðum ársins voru 53,2 milljarðar króna.
• Heildareignir samstæðunnar í lok september voru 104,7 milljarðar króna.
• Eigið fé var 13 milljarðar í lok september.
Móðurfélagsreikningur:
• Hagnaður eftir skatt á fyrstu níu mánuðum ársins var 6,8 milljarðar króna.
• Hagnaður eftir skatt á þriðja ársfjórðungi var 734 milljónir króna
• Heildareignir í lok september voru 61,4 milljarðar króna
• Eigið fé var 22,9 milljarðar króna í lok september
• Arðsemi eigin fjár var 39% á ársgrundvelli
• Eiginfjárhlutfall er 37%
• Hagnaður á hlut á fyrstu 9 mánuðum ársins 2,12
Magnús Jónsson forstjóri Atorku;
„Afkoma Atorku fyrstu níu mánuði ársins var góð þrátt fyrir krefjandi
markaðsaðstæður. Atorka innleysti verulegan hagnað með sölu á einu af
fjárfestingarverkefnum sínum. Jafnframt fjárfesti félagið í nýju verkefni,
Geysi Green Energy og er þar kjölfestufjárfestir. Við sjáum veruleg tækifæri
með þátttöku í uppbyggingu á Geysi og hefur félagið í dag sterka stöðu til þess
að verða leiðandi í nýtingu á jarðvarma í heiminum. Atorka hefur í auknum mæli
verið að beina sjónum sínum til Asíu, meðal annars með fjárfestingum í
heilbrigðisgeiranum og infrastrúktúr, nú síðast með kaupum á um 10% hlut í
leiðandi félagi í uppbyggingu á vatnshreinsistöðvum í Kína. Ljóst er að með
aukinni velmegun munu Kínverjar fjárfesta verulega í bættum lífsgæðum og sjáum
við því mikil tækifæri í fjárfestingum því tengdu.
Atorka er með sterka fjárhagsstöðu og í góðri stöðu til að nýta sér þau
tækifæri sem munu skapast á komandi misserum.“
Helstu viðburðir
• Allur eignarhlutur í Jarðborunum var seldur til Geysir Green Energy.
Heildarvirði (Enterprise Value) sölunnar var 17,7 milljarðar króna.
Innleystur
hagnaður frá upphafi fjárfestingarinnar er um 11 milljarðar króna þar
af á fjórða milljarð á öðrum ársfjórðungi í móðurfélagsreikningi.
• Atorka gerðist kjölfestufjárfestir í Geysir Green Energy (GGE) og
keypti 32% hlut. Kaupverð var rúmir 7 milljarðar króna.
• Jarðboranir gerðu nýlega samning við Landsvirkjun um borun á fimm
rannsóknarholum á næsta ári.
• Geysir Green Energy keypti hlut Landsvirkjunar í Enex og á félagið nú
um 72% hlut.
• Kaup á tæplega 24% hlut í Shanghai Century Acquisition Corp (SHA) sem er
skráð á AMEX markaðnum í NY. SHA hefur samið um kaup á kínverska
lyfjafyrirtækinu Kelun Pharmaceutical með fyrirvara um samþykki
samkeppnisyfirvalda í Kína. Lyfjamarkaðurinn í Kína er í miklum vexti
með aukinni velmegun og fólksflutningi úr sveitum til borga.
• Promens lauk yfirtöku á plastframleiðslufyrirtækinu STE Packaging
Development á Spáni sem framleiðir umbúðir fyrir snyrtivörur og íhluti
fyrir þær. Ný verksmiðja var opnuð í Póllandi og verið er að skoða
frekari fyrirtækjakaup í Austur Evrópu. Í byrjun nóvember sameinaði
Promens alla starfsemi sína undir einu nafni sem styrkir ímynd
félagsins.
• Eignarhlutur í Amiad hefur verið aukinn í tæp 22%. Amiad Filtration er
leiðandi á alþjóðamarkaði í framleiðslu á vatnshreinsibúnaði. Mikill
vöxtur er á þessum markaði og er vaxandi eftirspurn eftir hreinu vatni.
• Atorka hefur jafnframt bætt við nýrri fjárfesingu í vatnshreinsiiðnaði
með kaupum á um 10% hlut í Asian Environment Holdings. Félagið lauk til
að mynda nýlega við uppbyggingu á 200.000 m3 vatnshreinsistöð í Kína sem
félagið mun eiga og reka næstu 20 árin og vinnur að uppbyggingu á annan
tug sambærilegra verkefna í Asíu.
• Atorka hefur endurfjármagnað stærstan hluta af skammtímalántökum sínum,
5,5 milljarða króna, með nýjum lántökum til 2 ára eða lengur.
Nánari upplýsingar veita;
Magnús Jónsson,
forstjóri í síma 540 6200
Valdís Arnardóttir
kynningarstjóri í síma 840 6217
Reikninga Atorku Group má finna á heimasíðu félagsins www.atorka.is
Um Atorku Group
Atorka er fjárfestingarfélag sem styður framsækin fyrirtæki, sem njóta góðs af
hnattrænni þróun, til leiðandi hlutverks á heimsvísu. Í fjárfestingum sínum
leggur Atorka áherslu á að rekstur fyrirtækjanna sé öflugur og hafi sterkt
stjórnendateymi og að fyrirtækið starfi við góð skilyrði til verulegs innri og
ytri vaxtar. Gert er ráð fyrir að tímalengd verkefnanna sé um 3-5 ár og að
mikil tækifæri séu til vaxtar og verðmætaaukningar.
Atorka Group hf.
Hlíðasmára 1
201 Kópavogur
Sími: 540 6200 - Fax: 540 6220
Netfang: atorka@atorka.is