- 6 mánaða uppgjör 2007/2008


Hagnaður fyrstu sex mánaða 23,3 milljónir evra - hækkun um 31,9%


Helstu atriði

●  Velta á 2. ársfjórðungi nam 262,1 milljón evra sem er 11,5% hækkun. Velta
   fyrstu sex mánuði ársins var 396,1 milljón evra sem er 14,2% hækkun. 

●  Söluvöxtur á samanburðargrundvelli var 5,2% á 2. ársfjórðungi og 4,9% á
   fyrstu sex mánuðum ársins. 

●  EBITDA var 38,1 milljón evra á 2. ársfjórðungi, jókst um 9,7%, og var 45,4
   milljónir evra fyrstu sex mánuði ársins sem er 18,7% hækkun. 

●  Vöxtur EBITDA á samanburðargrundvelli á 2. ársfjórðungi var 5% og 10% fyrstu
   sex mánuði ársins. 

●  EBITDA hlutfall var stöðugt eða 14,5% á 2. ársfjórðungi. 

●  Nettóhagnaður var 22,5 milljónir evra á 2. ársfjórðungi og jókst um 15,7%,
   og var 23,3 milljónir evra fyrstu sex mánuði ársins og hækkaði um 31,9% 

●  Samþætting nýrra fyrirtækja gengur vel, sem hefur styrkt meginstoðir
   félagsins og aukið markaðshlutdeild. 

●  Hráefniskostnaður hafði neikvæð áhrif á afkomuna í framleiðslu og sölu
   andaafurða, hveitipönnukaka (blinis) og smurvara. 


Xavier Govare, forstjóri Alfesca:

„Afkoman í rekstri félagsins á hinum mikilvæga 2. ársfjórðungi og á fyrstu sex
mánuðum ársins var ánægjuefni og sérstaklega uppörvandi af þremur ástæðum: 

Í fyrsta lagi verður þessi góða afkoma á mikilvægasta ársfjórðungnum í rekstri
Alfesca en sala á reyktum laxi og andalifur (foie gras) er árstíðabundin og nær
hámarki á 2. ársfjórðungi. 

Í öðru lagi endurspeglar góð afkoma mikilvægi stefnumörkunar okkar þar sem
áherslan er á fjórar meginstoðir rekstrarins sem hver einkennist af ákveðnum
sveiflum og sértækum áhættuþáttum. Þetta skipulag skapar stöðugleika í rekstri
samstæðunnar þar sem meginstoðir rekstrarins styðja hver við aðra og stuðla að
snurðulausri samþættingu nýrra fyrirtækja félagsins. 

Í þriðja lagi hefur aukin sala og góð afkoma náðst við erfiðari markaðsaðstæður
en ríkt hafa um nokkurt skeið sem aftur má rekja til mikilla hækkana á
hrávöruverði og samdrætti í neyslu í vætutíð sumarsins og yfir hátíðarnar. 

Grundvöllur góðrar afkomu allra stoða rekstrarins má rekja til stöðugrar
áherslu á vöruþróun og aukna samkeppnishæfni. 

Búist er við að sala og markaðsaðstæður verði áfram erfiðar út almanaksárið
2008. Á sama tíma og við höldum til streitu áætlunum okkar um að efla félagið
enn frekar og auka virði hluthafa þess sýnir afkoma félagsins að það er vel í
stakk búið til að takast á við erfiðar ytri aðstæður. Við erum þess fullviss að
afkoma Alfesca verði áfram góð á seinni hluta fjárhagsársins.“ 


 
Nánari upplýsingar:
Philippe Perrineau	
framkvæmdastjóri fjármálasviðs	
477 7000

Antony Hovanessian	
framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar	
477 7000

Hrefna Ingólfsdóttir	
Forstöðumaður samskiptasvðis	
477 7007

Anhänge

interim financial statements jul - dec.pdf afkomutilkynning _q2_2007-08_final.pdf
GlobeNewswire