Samson er eignarhaldsfélag og er tilgangur þess almenn fjárfestingastarfsemi og skyldur rekstur. Félagið er eigandi tveggja dótturfélaga Samson Properties ehf og Ópera fjárfestingar ehf. Þar sem fyrir lá í árslok 2007 að Samson Properties ehf. yrði selt út úr samstæðunni á 1. ársfjórðung 2008 er starfsemi þess félags sýnd sem aflögð starfsemi í árslok 2007. Samstæðureikningur Samson eignarhaldsfélags ehf. samanstendur því af reikningsskilum móðurfélagsins og Óperu fjárfestingar ehf. Fjárfestingafélagið Ópera fjárfestingar ehf. er eigandi að um 25% eignarhluta í Fjárfestingarfélaginu Gretti hf. Samson Properties ehf. er fasteignafélag sem sérhæfir sig í rekstri, þróun og fjárfestingum í fasteignum og fasteignatengdum verkefnum í Evrópu. Stofnað hefur verið nýtt félag, Novator Properties sem keypt hefur allar eignir félagsins og yfirtekið skuldir þess. Það hefur nýlokið hlutafjáraukningu þar sem hópi öflugra fjárfesta var boðið að ganga til liðs við félagið. Ársreikningurinn er gerður í samræmi við alþjóðlega reikningsskilastaðla og er það í fyrsta sinn sem samstæðan birtir ársreikning sinn með þeim hætti. Ársreikningar samstæðunnar hafa undanfarin ár verið gerðir í samræmi við lög um ársreikninga og íslenskar reikningsskilavenjur. Innleiðing alþjóðlegu reikningsskilastaðlanna hafði óveruleg áhrif á fjárhagsstöðu samstæðunnar og ekki voru gerðar breytingar á samanburðarfjárhæðum eigin fjár og afkomu samstæðunnar eins og þær voru birtar samkvæmt íslenskum reikningsskilavenjum fyrir árið 2006. Eignarhluti móðurfélagsins í Landsbanka Íslands hf. var 4.559 m.kr. að nafnverði í árslok og nam hann 40,73% af heildarhlutafé bankans. Markaðsverð eignarhlutans nam 161.846 m.kr. í árslok en bókfært virði hans er 78.421 m.kr. en beitt er hlutdeildaraðferð við bókun eignarhlutans. Gengi hlutafjár í Landsbanka Íslands hf. hækkaði um 34% á árinu 2007. Tap félagsins á árinu 2007 nam 5.750 m.kr. samanborið við 13.221 m.kr. hagnað á árinu 2006. Beitt er hlutdeildaraðferð við að gera grein fyrir eignarhluta félagsins í Landsbanka Íslands hf. og færast 16.281 m.kr. til tekna. Markaðsvirði eignarhlutans jókst hins vegar um 41.031 m.kr. á árinu. Félagið færir afleiðusamninga á markaðsvirði og því kemur fram gjaldfærsla að fjárhæð 15.632 m.kr. sem að stórum hluta er vegna styrkingar íslensku krónunnar á árinu. Sem alþjóðlegt fjárfestingafélag beitir félagið gengisvörnum til að styðja við eign félagsins í Landsbanka Íslands hf. og draga úr gengisáhrifum á eignir félagsins í evrum talið. Þar sem félagið beitir hlutdeildaraðferð á eign sína í bankanum er hækkun á markaðsverði eignarinnar ekki færð að fullu á móti þessu tapi. Bókfært eigið fé í lok árs 2007 nam 19.319 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi og lækkaði það um 28,7% frá árslokum 2006. Ef eignarhlutur félagsins í Landsbanka Íslands hf. væri færður til eignar á markaðsverði væri eigið fé félagsins 87.728 m.kr. að teknu tilliti til tekjuskattsáhrifa og eiginfjárhlutfall þá 46,56%. Í árslok 2006 var eigið fé félagsins skv. sömu aðferð 73.063 m.kr. og hefur því aukist um 20% á árinu. Helstu stærðir úr ársreikningi félagsins eru eftirfarandi (fjárhæðir eru í milljónum króna): Sjá viðhengi.
2007
| Quelle: Samson eignarhaldsfélag ehf.