- Alfesca ákveður að kaupa ekki Oscar Mayer


Alfesca tilkynnir að viðræðum um fyrirhuguð kaup á breska fyrirtækinu Oscar
Mayer, sem framleiðir tilbúna rétti fyrir verslanakeðjur, hefur verið slitið. 

Ákvörðunin var tekin í kjölfar verulegra hækkana á hráefnisverði undanfarna
mánuði sem hafa haft áhrif á rekstur fyrirtækisins og leitt til þess að
rekstrarumhverfið á markaði fyrir tilbúna rétti í Bretlandi hefur breyst til
hins verra. Þessir óvissuþættir þýða að fyrirhuguð áform hefðu ekki haft í för
með sér virðisauka fyrir huthafa Alfesca á þessum tíma. 

Áfram verður unnið að því að þróa og stækka Alfesca. Sterkur efnahagsreikningur
og stuðningur fjármálastofnana og kjölfestuhluthafa gerir Alfesca kleift að
skoða áfram ný tækifæri sem henta við núverandi markaðsskilyrði. Frekari áform
verða tilkynnt eftir því sem efni standa til. 


Nánari upplýsingar veita:

Antony Hovanessian, 
framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar, 
sími 477 7000

Hrefna Ingólfsdóttir, 
forstöðumaður samskiptasviðs, 
sími 477 7007


Um Alfesca

Alfesca er í fremstu röð matvælaframleiðenda í Evrópu á þeim sviðum sem
fyrirtækið starfar. Megin stoðirnar í starfsemi félagsins eru fjórar: reyktur
lax og annar fiskur, andalifur (foie gras) og andakjöt, rækjur og annar
skelfiskur og pönnukökur (blini) og smurvörur ásamt ídýfum. Vörur fyrirtækisins
eru seldar undir vörumerkjum þess eins og Labeyrie, Blini, Delpierre, Skandia,
Lyons og Farne. Fyrirtækið framleiðir einnig töluvert fyrir vörumerki annarra
einkum í Bretlandi, Frakklandi og Spáni. Árleg velta er um 616 milljónir Evra
og starfsmenn eru um 3,500 


Alfesca er skráð í Norrænu OMX-kauphöllinni á Íslandi (OMXI: A). 

Upplýsingar um Alfesca er að finna á www.alfesca.com.

Anhänge

frettatilkynning - oscar mayer.pdf
GlobeNewswire