Bakkavör Group mun birta afkomu sína fyrir fyrsta ársfjórðung 2008 mánudaginn 28. apríl nk. eftir lokun markaða. Athygli er vakin á að um er að ræða breytta dagsetningu frá áður auglýstu birtingardagatali. Kynningarfundur þriðjudaginn 29. apríl kl. 8:30 Kynningarfundur fyrir hluthafa og markaðsaðila verður haldinn þriðjudaginn 29. apríl kl. 08:30 að íslenskum tíma í Ármúla 3, 108 Reykjavík. Á fundinum mun Ágúst Guðmundsson, forstjóri Bakkavör Group, skýra uppgjörið og svara fyrirspurnum. Netvarp og símafundur Fundinum verður varpað á netinu á www.bakkavor.com og hefst útsendingin kl. 08:30 að íslenskum tíma. Einnig er hægt að fylgjast með fundinum í síma 800 8660 og +44 (0)20 3043 2436 (breskt númer). Kynningarefni vegna fundarins verður hægt að nálgast að honum loknum á heimasíðu félagsins, www.bakkavor.com
Bakkavör Group birtir afkomu fyrsta ársfjórðungs 2008, mánudaginn 28. apríl nk. - ATHUGIÐ BREYTTA DAGSETNINGU Á BIRTINGU UPPGJÖRS
| Quelle: Bakkavör Group hf.