Þann 21. apríl 2008 var ársreikningur Stykkishólmbæjar 2007 tekinn til fyrri umræðu. Eins og sveitarstjórnarlög kveða á um, skal fjalla um ársreikninginn á tveimur fundum í sveitarstjórn. Seinni umræða verður 28. maí n.k. Í reglugerð nr. 944/2000, um bókhald og ársreikninga sveitarfélaga, sem tók gildi 1. janúar 2001, eru ákvæði um reikningsskil sveitarfélaga. Þar er gert ráð fyrir að sveitarfélög hagi bókhaldi sínu og reikningsskilum í samræmi við ákvæði laga um bókhald nr. 145/1994 og ársreikninga nr. 144/1994 að svo miklu leyti sem sveitarstjórnarlög mæla ekki fyrir á annan veg eða reglugerðir settar á grundvelli þeirra. Ársreikningar sveitarfélaga skulu byggðir á almennum reikningsskilaaðferðum. Ársreikningur Stykkishólmsbæjar fyrir árið 2007 byggir á sömu reikningsskilaaðferðum og árið áður í samræmi við framangreind lög og reglur. Helstu lykiltölur: Sjá í meðfylgjandi fréttatilkynningu. Rekstrartekjur sveitarfélagsins á árinu námu 687,1 millj. kr. samkvæmt samanteknum ársreikningi fyrir A- bæjarsjóð og B- hluta stofnanir og fyrirtæki, en þar af námu rekstrartekjur bæjarsjóðs 627,8 millj. kr. Rekstrargjöld námu 684,5 millj. Þar af námu rekstrargjöld bæjarsjóðs 606,6 millj. að meðtöldum hækkunum vegna lífeyrisskuldbindinga starfsfólks að upphæð 24,8 m.kr. Rekstrarniðurstaða bæjarsjóðs var jákvæð um 21,2 millj. samkvæmt ársreikningi en jákvæð um 2,6 millj. kr. í samanteknum ársreikningi A og B hluta. Eigið fé sveitarfélagsins í árslok 2007 nam, eftir að lífeyrisskuldbindingar höfðu verið dregnar frá, 558,9 millj. kr. samkvæmt efnahagsreikningi, en þar af nam eigið fé bæjarsjóðs 740,3 millj. kr. Rekstrarafkoma bæjarsjóðs Stykkishólmbæjar er jákvæð um 21,2 millj. kr. Meginástæða eru fyrir þessu er: • Auknar greiðslur úr Jöfnunarsjóði sveitarfélaga sem námu um 69,1 milljónum meira en áætlun gerði ráð fyrir, en á móti kom hærri launagreiðslur m.a. vegna aukinnar þjónustu í Leikskólanum og Grunnskólanum, auk hækkun lífeyrisskuldbindinga starfsfólks um 24,8 milljónir kr. Lífeyrisskuldbindingar Stykkishólmsbæjar eru 177,8 milljónir samkvæmt útreikningum tryggingastærðfræðings. Rekstarafkoma samantekins ársreiknings A og B hluta er jákvæð um 2,6 millj. kr. Meginátæður eru fyrir þessu eru: . Hagnaður af Fasteignum Stykkishólms (FSH ehf) upp á 12,6 milljónir króna að stærstum hluta vegna eignasölu. . Hallarekstur hafnarsjóðs var 6,8 millj.kr. og stafar af minni umsvifum á höfn m.a. vegna algjörs stopp á hörpuskelveiðum sem staðið hefur yfir frá 2002. . Hallarekstur Fráveitu er 16,9 millj.kr. og skýrir aukin fjármagnskostnaður vegna aukinnar verðbólgu þennan halla að mestu leiti. Það sem er jákvætt við rekstur bæjarsjóðs er að handbært fé frá rekstri er 96,8 millj.kr., ef ekki yrði farið í fjárfestingar og engin ný lán tekin, þá tæki það ekki nema 9,4 ár að greiða upp allar skuldir bæjarsjóðs Stykkishólmsbæjar. Fjárfestingar voru 126,2 milljónir króna og vegur fjárfesting í gatnagerð, frágang á miðbæ og frágangur á lokaverkum á nýjum glæsilegur leikskóla þyngst. Auk þess voru fjárfest í íþróttamannvirkjum og lausamunum. Álagningarhlutfall útsvars var 13,03%. Álagningarhlutfall fasteignaskatts var 0,43% á íbúðarhúsnæði. Álagningarhlutfall á aðrar fasteignir var 1,65%. Ársreikningurinn í heild sinni verður birtur á heimasíðu Stykkishólmbæjar. Nánari upplýsingar veitir: Þór Örn Jónsson, bæjarritari, í síma 433-8100