Eftirfarandi kynningar og símafundir verða haldnir í tengslum við afkomu Glitnis á 1. ársfjórðungi 2008. Hægt verður að nálgast uppgjörið á www.glitnir.is frá og með birtingu uppgjörs árla morguns þann 7. maí. Kynning í Reykjavík Lárus Welding, forstjóri Glitnis, kynnir uppgjörið fyrir hluthöfum og markaðsaðilum kl. 9:00, miðvikudaginn 7. maí, á Hótel Nordica, sal H og I. Fundurinn fer fram á ensku. Fylgjast má með fundinum beint á Netinu á heimasíðu Glitnis, www.glitnir.is. Jafnframt verður hægt að senda spurningar á fundinn. Bókun fjölmiðlaviðtala Til að bóka fjölmiðlaviðtöl, vinsamlegast hafið samband við Má Másson, forstöðumann kynningarmála á Íslandi, með því að senda tölvupóst til mar.masson@glitnir.is eða hringja í síma 440 4990.
Kynning Glitnis á uppgjöri 1. ársfjórðungs 2008
| Quelle: Glitnir banki hf.