Landsbanki Íslands hf. sem verið hefur viðskiptavaki með hlutabréf FL Group hf. hefur sagt upp samningi um viðskiptavakt frá og með deginum í dag vegna mögulegrar afskráningar FL Group hf. Samningur FL Group hf. við Saga Capital Fjárfestingarbanka og Glitni banka um að annast viðskiptavakt með hlutabréf í FL Group fyrir eigin reikning félaganna er enn í gildi.