FL Group hf., leitaði álits Yfirtökunefndar varðandi mögulega afskráningu félagsins og tillögum tengdum afskráningu sem lagðar verða fyrir hluthafafund þann 9. maí. Álit nefndarinnar er að leið sú sem kynnt hefur verið í tengslum við mögulega afskráningu leiði ekki til þess að hluthöfum í félaginu, einum eða fleirum, verði skylt að gera öðrum yfirtökutilboð. Yfirtökunefnd hefur meðal annars það hlutverk að stuðla að bestu framkvæmd í viðskiptum með verðbréf, sem kynnu að fela í sér yfirtökuskyldu. Nánari upplýsingar veitir: Júlíus Þorfinnsson forstöðumaður samskiptasviðs sími: 591 4400 julius@flgroup.is
Álit Yfirtökunefndar um hvort yfirtökuskylda myndist við fyrirhugaða afskráningu FL Group hf.
| Quelle: FL GROUP hf.