Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch hefur staðfest lánshæfismatseinkunn langtímaskuldbindinga Landsbankans sem A, einkunnir vegna innlendra og erlendra skammtímaskuldbindinga bankans sem F1 og einkunn fyrir fjárhagslegan styrk sem B/C. Horfur vegna langtímaskuldbindinga eru neikvæðar. Langtímaskuldbindingar dótturfélags bankans í Bretlandi, Landsbanki Heritable Bank, voru einnig staðfestar sem 'A', einkunnir vegna innlendra og erlendra skammtímaskuldbindinga bankans sem F1 og einkunn fyrir fjárhagslegan styrk sem C. Horfur vegna langtímaskuldbindinga eru neikvæðar. Nánari rökstuðning Fitch má finna í fréttatilkynningu hér meðfylgjandi. Frekari upplýsingar veita: Bankastjórar Landsbankans, Sigurjón Þ. Árnason s. 898 0177 og Halldór J. Kristjánsson í s. 820 6399, og Brynjólfur Helgason, framkvæmdastjóri Alþjóðasviðs í s. 820-6340.
Fitch staðfestir lánshæfismatseinkunn Landsbankans sem A / F1 / B/C
| Quelle: Landsbanki Íslands hf.