543 milljón króna tekjuafgangur Mosfellsbæjar Ársreikningur Mosfellsbæjar fyrir árið 2007 var kynntur á 491. fundi bæjarstjórnar í dag miðvikudaginn 21. maí 2008 og honum vísað til seinni umræðu sem er fyrirhuguð er 4. júní. Rekstur sveitarfélagsins á árinu 2007 gekk mjög vel. Rekstrarniðurstaða A og B hluta var jákvæð um 543 mkr. Veltufé frá rekstri var 600 mkr eða 13,8% af rekstrartekjum og handbært fé frá rekstri var 416 mkr. Skuldir og skuldbindingar A og B hluta lækkuðu um 348 mkr á árinu og námu 3.730 mkr í árslok. Eiginfjárhlutfall A og B hluta var 0,42 og hefur hækkað úr 0,25 frá árinu 2002 en sé einungis litið til A hluta var eiginfjárhlutfall 0,42 og hefur hækkað úr 0,15 frá árinu 2002. Mikil uppbygging átti sér stað í sveitarfélaginu á árinu og námu fjárfestingar 618 mkr en þar af voru 401 mkr vegna fræðslumála og 66 mkr vegna íþróttamála. Á árinu var tekin í notkun íþróttamiðstöð að Lækjarhlíð sem er í eigu Fasteignafélagsins Lækjarhlíðar ehf þar sem Mosfellsbær er 50% eigandi. Mosfellsbær hefur gert sérleyfissamning til 30 ára sem tryggir íbúum aðgang að miðstöðinni. Sköttum og þjónustugjöldum er stillt í hóf og er Mosfellsbær eitt fárra sveitarfélaga sem ekki fullnýtir heimild til álagningar útsvars. Fasteignaskattar á íbúðarhúsnæði voru lækkaðir í 0,225% auk þess sem 5 ára börn fá áfram endurgjaldslausa 8 tíma leikskólavist. Mosfellsbær hefur markað sér sérstöðu á meðal sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu hvað varðar áherslu á fjölskylduvænt samfélag með áherslu á íþróttir og útivist. Framtíðarhorfur Mosfellsbæjar eru góðar og hefur sveitarfélagið í samvinnu við landeigendur stuðlað að nægu framboði lóða og uppbyggingu skólamannvirkja. Íbúum fjölgaði um 646 eða um 8,6% á árinu og voru 8.147 í árslok. Gert er ráð fyrir áframhaldandi íbúaaukningu á komandi árum sbr. þriggja ára áætlun. Ársreikning bæjarsjóðs Mosfellsbæjar má nálgast á heimasíðu bæjarins www.mos.is undir liðnum Stjórnsýsla. 21. maí 2008 Pétur Jens Lockton, fjármálastjóri Mosfellsbæjar sími 525-6700 Meðfylgjandi: Ársreikningur Mosfellsbæjar 2007. Lykiltölur úr ársreikningi Mosfellsbæjar 2007. Lykiltölur úr ársreikningi Mosfellsbæjar sl. 6 ár.