Kaupþing banki hf. ("Kaupþing") hefur selt Bakkabraedur Holding B.V. rétt sinn að nær öllum nýjum hlutum í Exista hf. ("Exista") sem bankinn átti að fá greidda fyrir hluti sína í Skiptum hf. samkvæmt skilmálum yfirtökutilboðs Exista er bankinn gekk að 31. mars 2008. Kaupverð miðast við lokagengi Exista í gær, 29. maí 2008, sem var 10,12 krónur á hlut. Kaupþing átti rétt á 1.301.769.147 nýjum hlutum, eða sem nemur 9,18% af heildarhlutafé í Exista að teknu tilliti til fyrirhugaðrar hlutafjárhækkunar félagsins. Bankinn hefur nú gengið að tilboði Bakkabraedur Holding B.V. um að kaupa rétt bankans að 1.271.961.953 nýjum hlutum (8,97%) sem leiðir til þess að eignarhlutur Bakkabraedur Holding B.V. í Exista helst óbreyttur eftir útgáfu nýrra hluta í Exista í tengslum við yfirtöku á Skiptum hf. Nánari upplýsingar veitir: Jónas Sigurgeirsson, framkvæmdastjóri Samskiptasviðs, í síma 444-6112 eða ir@kaupthing.com
Kaupþing selur rétt sinn að nýjum hlutum í Exista
| Quelle: Kaupþing banki hf.