Fjármálaþjónustufyrirtækið Exista hf. birtir í dag árshlutauppgjör fyrir fyrstu sex mánuði ársins 2008. Afkoma á öðrum ársfjórðungi: • Afkoma eftir skatta var neikvæð um 38,4 milljónir evra (ISK 4,2 milljarðar) • Heildartekjur námu 89,6 milljónum evra (ISK 9,8 milljarðar) Afkoma á fyrstu sex mánuðum: • Afkoma eftir skatta var neikvæð um 82,2 milljónir evra (ISK 9,0 milljarðar) • Hagnaður af fjármálaþjónustu eftir skatta nam 66,4 milljónum evra (ISK 7,3 milljarðar) • Tap af fjárfestingum eftir skatta nam 148,6 milljónir evra (ISK 16,3 milljarðar) Helstu niðurstöður efnahagsreiknings 30. júní 2008: • Heildareignir námu 6,9 milljörðum evra (ISK 868 milljarðar), lækkuðu um 13,6% frá áramótum • Eigið fé nam 2,3 milljarðar evra (ISK 286 milljarðar), lækkaði um 3,6% frá áramótum • Heildarskuldir lækkuðu um 1,0 milljarð evra (ISK 123 milljarðar), eða 17,7%, frá áramótum • Handbært fé nam 303,4 milljónum evra (ISK 38 milljörðum) og tryggt lausafé til að mæta endurfjármögnun til desember 2009 • Eiginfjárhlutfall var 37,0% (með víkjandi skuldabréfum) Lýður Guðmundsson, stjórnarformaður: „Í ljósi ríkjandi markaðsaðstæðna erum við sátt við niðurstöðu ársfjórðungsins. Á umrótartímum á fjármálamörkuðum höfum við lagt áherslu á að standa vörð um traustar undirstöður félagsins. Rekstur fyrirtækja okkar gengur vel og við höfum mikla trú á þeim til framtíðar, þótt verðmyndun á markaði sé veik um þessar mundir. Sem fyrr högum við starfsemi Exista, þar með talið kostnaðaraðhaldi og áhættustýringu, með það að markmiði að treysta stoðir félagsins. Með okkar öflugu fyrirtæki og vaxandi ítök í fjármálaþjónustu á Norðurlöndum erum við í góðri stöðu til þess að mæta krefjandi markaðsaðstæðum til hagsbóta fyrir félagið í framtíðinni.“ Frekari upplýsingar um reikninga félagsins veitir: Samskiptasvið Exista Sigurður Nordal framkvæmdastjóri sími: 550 8620 (ir@exista.com) Um Exista Exista starfar á sviði fjármálaþjónustu undir merkjum VÍS, Lífís og Lýsingar og sem kjölfestueigandi í Sampo Group og Kaupþingi banka. Exista er jafnframt alþjóðlegur fjárfestir, meðal annars í Storebrand, Bakkavör Group og Skiptum. Starfsemi Exista byggir á tveimur meginstoðum sem eru fjármálaþjónusta og fjárfestingar. Upplýsingar um Exista hf. og uppgjörið er að finna á vefsíðu félagsins, www.exista.com