Dótturfélag Kaupþings banka hf., Kaupthing Singer & Friedlander ("KSF") hefur selt rekstur sinn á sviði tryggingaiðgjaldafjármögnunar til Close Brothers á lítils háttar yfirverði miðað við bókfært verð (e. net asset value). Með sölunni verður losað um lausafé hjá KSF sem nemur rúmlega 100 milljónum punda (jafnvirði um 16 milljarða króna). Jafnframt hefur KSF nánast hætt rekstri á sviði hrávöruviðskiptafjármögnunar og hafa 97% af upphaflegu eignasafni, sem nam tæplega 350 milljónum punda (jafnvirði um 55 milljarða króna), verið greiddar upp. KSF greindi í febrúar frá síðasta þættinum í endurskipulagningu rekstrarins í Bretlandi í kjölfar kaupa Kaupþings á Singer & Friedlander árið 2005. KSF gerði þá grein fyrir því að bankinn hygðist hætta starfsemi á sviði eignafjármögnunar og hrávöruviðskiptafjármögnunar, auk þess sem gerðar hefðu verið skipulagsbreytingar innan fyrirtækjasviðs í Bretlandi. Unnið hefur verið að því að hætta starfsemi á sviði eignafjármögnunar frá því sú tilkynning birtist og hafa margir hugsanlegir kaupendur lýst áhuga á starfseminni í heild eða að hluta. Bankinn vinnur nú að því að losna úr rekstri fyrirtækjaeignafjármögnunar og eignafjármögnunar á sviði heilbrigðisþjónustu og gerir ráð fyrir því að senda nánari upplýsingar um stöðu þess á næstu mánuðum. Ármann Þorvaldsson, forstjóri Kaupthing Singer & Friedlander"Lausafjárstaða okkar styrkist nú enn frekar í kjölfar þess að bankinn hættir í rekstri hrávöruviðskiptafjármögnunar og tryggingaiðgjaldafjármögnunar og í ljósi þess að innlánaafurð okkar á netinu, Kaupthing Edge, hefur gengið mjög vel. Við erum því áfram bjartsýn á stöðu rekstrarins í Bretlandi." Frekari upplýsingar veita: Jónas Sigurgeirsson, Framkvæmdastjóri Samskiptasviðs, í síma 444 6112 Ármann Þorvaldsson, Forstjóri KSF, í síma +44 203 205 5000
- Kaupþing selur rekstur sinn á sviði tryggingaiðgjaldafjármögnunar í Bretlandi
| Quelle: Kaupþing banki hf.