Framsetning árshlutareiknings fagfjárfestasjóðsins KB 1M er í samræmi við reglur um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af Fjármálaeftirlitinu. Enginn hagnaður varð af rekstri sjóðsins á tímabilinu samkvæmt rekstrarreikningi, en KB 1M hefur fengið víxla sína tekna til viðskipta í OMX Nordic Exchange Iceland hf. • Eigið fé sjóðsins nam í lok tímabilsins 1 m.kr. skv. efnahagsreikningi. • Árshlutareikningurinn var kannaður af KPMG hf. sem telur að við könnun sína hafi ekkert komið fram sem bendir til annars en að árshlutareikningurinn gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á tímabilinu, fjárhagsstöðu hans 30. júní 2008 og breytingu á hreinni eign á tímabilinu, í samræmi við lög um ársreikninga. Eigið fé Rekstrarfélags Kaupþings banka hf., sem er rekstraraðili KB 1M, þann 30. júní 2008 nam 3.532 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi. Eiginfjárhlutfall sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er 59,7% en samkvæmt lögunum má hlutfallið ekki vera lægra en 8,0%. Rekstrarfélag Kaupþings banka hf. er dótturfélag Kaupþings banka hf. og hluti af samstæðureikningi bankans og dótturfélaga hans. Hægt verður að nálgast árshlutareikning sjóðsins frá og með deginum í dag hjá Rekstrarfélagi Kaupþings banka hf., Borgartúni 19, 105 Reykjavík. Nánari upplýsingar um árshlutareikning KB 1M veitir Trausti Jónsson sjóðsstjóri í síma 444 6000.
- Afkoma fagfjárfestasjóðsins KB 1M á tímabilinu 1. janúar-30. júní 2008
| Quelle: Fagfjárfestasjóðurinn KB 1M