Moody's endurskoðar lánshæfismatseinkunn Landsbankans til mögulegrar lækkunar Alþjóðlega matsfyrirtækið Moody's Investors Service hefur tekið til athugunar lánshæfismatseinkunn Landsbankans A2 / C- með mögulega lækkun í huga. Hins vegar hefur einkunn vegna innlendra og erlendra skammtímaskuldbindinga bankans, P-1, verið staðfest, en það er jafnframt hæsta einkunn sem gefin er af Moody's. Nánari rökstuðning má finna í fréttatilkynningu frá Moody's hér meðfylgjandi. Frekari upplýsingar veitir Brynjólfur Helgason, framkvæmdastjóri Alþjóðasviðs í s. 820-6340.
Moody's endurskoðar lánshæfismatseinkunn Landsbankans til mögulegrar lækkunar
| Quelle: Landsbanki Íslands hf.