Fréttatilkynning Reykjavík 30. september 2008 Matsfyrirtækið Moody's Investor Services tilkynnti í dag að það hefði lækkað lánshæfiseinkunn sína á langtímaskuldbindingum Glitnis úr A2 í Baa2, á skammtímaskuldbindingum úr P1 í P2 og fjárhagslegan styrkleika úr C- í D. Horfur fyrir fjárhagslegan styrkleika eru neikvæðar. Frekari upplýsingar veita: Vilhelm Már Þorsteinsson, Framkvæmdastjóri fjárstýringar í síma 440 4012 Sigrún Hjartardóttir, Forstöðumaður fjárfestatengsla í gegnum netfang sihj@glitnir.is og síma 440 4748 Már Másson, Forstöðumaður samskiptasviðs í gegnum netfang mm@glitnir.is og í síma 440 4990
Moody's breytir lánshæfiseinkunn Glitnis
| Quelle: Glitnir banki hf.