Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch hefur í dag lækkað lánshæfismatseinkunn langtímaskuldbindinga Landsbankans í 'BBB' úr 'A' , einkunnir vegna innlendra og erlendra skammtímaskuldbindinga bankans í 'F3' úr 'F1' og einkunn fyrir fjárhagslegan styrk sem 'C' úr 'B/C'. Lánshæfismatseinkunnir bankans hafa verið settar á athugunarlista með neikvæðum vísbendingum. Langtímaskuldbindingar dótturfélags bankans í Bretlandi, Landsbanki Heritable Bank, voru einnig lækkaðir í 'BBB' úr 'A', einkunnir vegna innlendra og erlendra skammtímaskuldbindinga bankans sem 'F3' úr 'F1' og einkunn fyrir fjárhagslegan styrk staðfest sem C. Lánshæfismatseinkunnir bankans hafa verið settar á athugunarlista með neikvæðum vísbendingum. Nánari rökstuðning Fitch má finna í fréttatilkynningu hér meðfylgjandi. Frekari upplýsingar veita: Bankastjórar Landsbankans, Sigurjón Þ. Árnason s. 898 0177 og Halldór J. Kristjánsson í s. 820 6399, og Brynjólfur Helgason, framkvæmdastjóri Alþjóðasviðs í s. 820-6340.
Fitch lækkar lánshæfismatseinkunn Landsbankans í BBB / F3 / C
| Quelle: Landsbanki Íslands hf.