Fjármálaeftirlitið hefur ákveðið að stöðva tímabundið viðskipti með alla fjármálagerninga útgefnum af Glitni banka hf., Kaupþingi banka hf., Landsbanka Íslands hf., Exista hf., Straumi fjárfestingarbanka hf. og Sparisjóðs Reykjavíkur og nágrennis hf. Ákvörðunin er tekin þar sem það sé mat Fjármálaeftirlitsins að jafnræði fjárfesta verði ekki tryggt með öðrum hætti. Af því leiðir að Glitnir Sjóðir hf. kemst ekki hjá því að fresta innlausnum í eftirfarandi sjóðum þar sem þeir innihalda fjármálagerninga framangreindra félaga: Sjóður 1 - skuldabréf Sjóður 10 - úrval innl. hlbr. Sjóður 11 - fyrirtækjabréf Sjóður 6 - aðallistinn Sjóður 9 - peningamarkaðsbréf Áfram verður tekið við pöntunum viðskiptavina, en þær verða ekki afgreiddar fyrr en Fjármálaeftirlitið ákveður að viðskipti hefjist að nýju með fjármálagerninga félaganna. Frestun innlausnar ofangreindra sjóða er gerð á grundvelli 2. mgr. 27. gr. og 2. mgr. 53. gr. laga nr. 30/2003 um verðbréfasjóði og fjárfestingarsjóði.