Landsbanki Íslands hf. tilkynnir hér með að Fjármálaeftirlitið (FME) hefur ákveðið að taka yfir vald hluthafafundar Landsbanka Íslands hf. og víkja félagsstjórn í heild sinni frá störfum þegar í stað. Fjármálaeftirlitið hefur skipað skilanefnd sem tekur við öllum heimildum stjornar þegar í stað. Í skilanefnd hafa verið skipaðir Ársæll Hafsteinsson, Einar Jónsson, Lárentsínus Kristjánsson, Lárus Finnbogason og Sigurjón G. Geirsson. Skilanefnd hefur m.a. tekið eftirfarandi fram: * Skilanefnd skal vinna að því að tryggja áframhaldandi viðskiptabankastarfsemi Landsbanka Íslands hf. hér á landi. * Innköllun til lánardrottna Landsbanka Íslands hf. verður ekki gefin út. * Ákvæði gjaldþrotaskiptalaga eiga ekki við meðan skilanefnd fer með málefni fjármálafyrirtækisins. Á sama tíma verður ekki komið fram aðfarargerð eða kyrrsetningu gagnvart Landsbankanum. Skilanefnd hefur farið þess á leit við Halldór J. Kristjánsson og Sigurjón Þ. Árnason að þeir haldi áfram störfum sem bankastjórar Landsbankans og beri áfram ábyrgð á daglegum störfum. Landsbanki Íslands hf. vill taka fram að bankinn hefur ekki verið tekinn til gjaldþrotaskiptameðferðar heldur er aðgerðunum nú ætlað að vernda bankann tímabundið frá því að standa skila á greiðslum skulda og annarra skuldbindinga sem kunna að falla í gjalddaga. Vinna hefur þegar hafist við endurskipulagningu á starfsemi Landsbankans. Skilanefndin og bankastjórarn Landsbankans eru sammála um að starfsemi Landsbankans skuli vera í eins eðlilegu horfi og kostur er á næstu dögum með það fyrir augum að vernda hagsmuni Landsbankans innan lands sem utan. Frekari upplýsingar veita bankastjórar Landsbankans, Halldór J. Kristjánsson og Sigurjón Þ. Árnason, í síma 410 4009.
Starfsemi Landsbankans óbreytt og bankastjórn ber áfram ábyrgð á daglegum rekstri
| Quelle: Landsbanki Íslands hf.