Alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch hefur í dag lækkað lánshæfismatseinkunn langtímaskuldbindinga Landsbankans í 'D' úr 'B' , einkunnir vegna innlendra og erlendra skammtímaskuldbindinga bankans í 'D' úr 'B' og einkunn fyrir fjárhagslegan styrk staðfest sem 'F'. Lánshæfismatseinkunnir bankans eru á ekki lengur á athugunarlista. Langtímaskuldbindingar dótturfélags bankans í Bretlandi, Landsbanki Heritable Bank, voru einnig lækkaðir í 'D' úr 'BB', einkunnir vegna innlendra og erlendra skammtímaskuldbindinga bankans sem 'D' úr 'B' og einkunn fyrir fjárhagslegan styrk lækkuð í 'F' frá 'D'. Lánshæfismatseinkunnir bankans eru ekki lengur á athugunarlista. Nánari rökstuðning Fitch má finna í fréttatilkynningu hér meðfylgjandi. Frekari upplýsingar veitir Brynjólfur Helgason, framkvæmdastjóri Alþjóðasviðs í s. 820-6340.
Fitch lækkar lánshæfismatseinkunn Landsbankans í D / D / F
| Quelle: Landsbanki Íslands hf.