Í ljósi umfjöllunar um beiðni Seðlabanka Íslands um auknar tryggingar frá SPRON vegna endurhverfra viðskipta vill SPRON koma því á framfæri að félagið hefur átt takmörkuð viðskipti með skuldabréf annarra fjármálastofnana og hefur gert ráð fyrir því að aukinna trygginga yrði óskað. SPRON vill jafnframt koma því á framfæri að öll innlend greiðslumiðlun hefur um árabil farið í gegnum Seðlabanka íslands án milligöngu Sparisjóðabanka Íslands.