Exista hf. mun birta afkomu þriðja ársfjórðungs eftir lokun markaða fimmtudaginn 27. nóvember næstkomandi. Vakin er athygli á því að vegna óvissu á íslenskum fjármálamarkaði hefur birtingu uppgjörs verið frestað frá áður auglýstum birtingardegi. Kynningarfundur 28. nóvember 2008 Kynning á uppgjöri þriðja ársfjórðungs fer fram föstudaginn 28. nóvember 2008 og hefst stundvíslega kl. 8:30. Þar munu stjórnendur félagsins gera grein fyrir árshlutareikningnum og svara fyrirspurnum. Kynningarfundurinn fer fram í höfuðstöðvum Exista að Ármúla 3 í Reykjavík. Húsið opnar kl. 8:00 og verður boðið upp á léttan morgunverð. Kynningin er opin hluthöfum og öðrum markaðsaðilum. Frekari upplýsingar veitir: Samskiptasvið Exista Svana Huld Linnet sími: 550 8623 ir@exista.com