-Mikilvægur stuðningur meðan unnið er að endurskipulagningu og endurfjármögnun félagsins. -95% skuldabréfaeigenda hafa þegar skrifað undir -Söluferli eigna á áætlun sem mun styrkja fjárhagsstöðu félagsins. -Flutningastarfsemin er í góðum rekstri, dagleg starfsemi og þjónusta við viðskiptavini tryggð. Hf. Eimskipafélag Íslands hefur samið við skuldabréfaeigendur í flokkum HFEIM 071 og HFEIM 072. Eimskip hefur þegar fengið undirritað samþykki 95% skuldabréfaeigenda og áfram er unnið að því að ná sama samkomulagi við þann hluta eigenda skuldabréfa sem hefur ekki gengið frá samningi við félagið. Gylfi Sigfússon forstjóri Hf. Eimskipafélags Íslands: "Eins og áður hefur komið fram vinnur félagið að sölu eigna og því mikilvægt að skapa frið um félagið á meðan söluferli er í gangi. Stjórnendur félagsins vinna nú að endurskipulagningu ásamt endurfjármögnun félagsins og er stuðningur skuldabréfaeigenda því mikilvægt skref í þeirri vinnu. Með því að veita Eimskip þetta svigrúm er verið að vernda eignir þess og þar með að takmarka áhættu kröfuhafa. Flutningastarfsemi Eimskips er í góðum rekstri, dagleg starfsemi og þjónusta við viðskiptavini er sem áður tryggð. Söluferli eigna gengur samkvæmt áætlun sem mun styrkja verulega fjárhagsstöðu félagsins." Í ofangreindum flokkum skuldabréfa skuldbatt Eimskip sig við útgáfu þeirra til að tryggja að bókfært eigið fé væri ekki lægra en 25% frá og með árshlutauppgjöri fyrsta ársfjórðungs 2008. Ljóst er að Eimskip getur ekki tryggt þau viðmið og því hefur verið samið við 95% eigenda ofangreindra skuldabréfaflokka að þeir falli frá rétti sínum til að gjaldfella kröfu sína á hendur félaginu þrátt fyrir að eiginfjárhlutfallið sé eða verði lægra en 25% fram að gjalddaga. Eimskip hefur nú heimild til að fresta gjalddögum skuldabréfanna þar til 30 dögum eftir sölu á frystigeymslustarfsemi félagsins í Norður Ameríku en þó eigi síðar en 30. júní 2009. Þá verði öllum vaxtagreiðslum frestað til gjalddaga og gjaldfallnir vextir bætast við höfuðstól. Skuldabréfaflokkur HFEIM 071 er 1.500 mkr. að nafnvirði og skuldabréfaflokkur HFEIM 072 er 8.000 mkr. að nafnvirði.
Eimskip semur við skuldabréfaeigendur
| Quelle: Hf. Eimskipafélag Íslands