Straumur-Burðarás fjárfestingabanki hf. (Straumur) hefur samið við umsjónaraðila breska verðbréfa- og ráðgjafarfyrirtækisins Teathers Limited (Teathers), sem er í greiðslustöðvun, um kaup á nafninu"Teathers", ásamt tilteknum eignum sem lúta að rekstri starfseminnar. Straumur stefnir jafnframt að því að ráða allt að 80 starsfmenn Teathers, eða meirihluta núverandi starfsmanna þegar stoðsvið eru undanskilin. Um er að ræða starfsmenn á öllum helstu sviðum starfseminnar, þ.e. fyrirtækjaráðgjöf, verðbréfamiðlun, greiningu og fjárfestingarsjóðum, auk nokkurra stoðsviða. Starfsemin verður rekin undir merkjum Teathers frá útibúi Straums í London. Nick Stagg, forstjóri Teathers, mun leiða starfsemina. Hann mun taka sæti í framkvæmdastjórn Straums og heyra beint undir William Fall. William Fall, forstjóri Straums:"Viðbót þessarar starfsemi þjónar því markmiði Straums að breikka þjónustuframboðið á markaðssvæði bankans. Í þeirri sterku fótfestu sem við öðlumst í London með því að ráða öflugan hóp starfsmanna undir forystu Nick Stagg felast einnig aukin viðskiptatækifæri fyrir aðra starfsemi okkar í Norður- og Miðaustur-Evrópu, sem orðið hefur hluti af Straumi á undanförnum tveimur árum. Straumur hefur gætt þess að viðhalda öflugum efnahagsreikningi til þess að geta haldið áfram að bæta við þjónustumiðaðri starfsemi á sterkum grunni. Ég er afar ánægður með það skref sem við stígum nú og býð Nick og aðra starfsmenn velkomna." Nick Stagg, forstjóri Teathers:"Þegar við tókum upp þráðinn eftir viðræðurnar sem upphaflega fóru fram um kaup Straums á starfsemi okkar komu enn betur í ljós þau tækifæri sem felast í því fyrir okkur að tilheyra Straumi. Straumur stefnir markvisst að því að auka vægi þóknunartekna og við erum afar ánægð með að gegna þar stóru hlutverki. Ég tel að aðild að Straumi færi okkur spennandi vettvang til frekari vaxtar á grunni viðskiptamódels sem er einfalt og skýrt." Nánari upplýsingar veita: Ólafur Teitur Guðnason, fjölmiðlafulltrúi Sími: 858 6778 Netfang: olafur.gudnason@straumur.net Georg Andersen, forstöðumaður Samskipta- og markaðssviðs Sími: 858 6707 Netfang: georg.andersen@straumur.net
Straumur eignast vörumerkið "Teathers" og ræður allt að 80 starfsmenn
| Quelle: Straumur-Burðarás Fjárfestingabanki hf.