Peningabréf ISK er skráður í Kauphöll og rekinn af Landsvaka hf. Í framhaldi af setningu laga nr. 125/2008 um heimild til fjárveitingar úr ríkissjóði vegna sérstakra aðstæðna á fjármálamarkaði o.fl., sem sett voru á Alþingi hinn 6. október sl. og þess umróts sem orðið hefur á fjármálamarkaði, hefur verið lokað fyrir innlausnir sjóðsins síðan 6. október. Þessir atburðir hafa breytt rekstrar- og fjárfestingarumhverfi peningamarkaðssjóða verulega. Með lagasetningunni var forgangsröð krafna á banka breytt, þannig að innlán voru sett framar skuldabréfum á sömu fyrirtæki. Umrót eins og það sem nú hefur orðið þýðir verulegt verðfall skuldabréfa innlendra banka. Það sama á við um skuldabréf fleiri útgefenda á markaði. Föstudaginn 17. október sl. beindi Fjármálaeftirlitið þeim tilmælum til rekstrarfélaga verðbréfasjóða að unnið yrði að slitum á öllum peningamarkaðssjóðum og sjóðfélögum greiddar út eignir í formi innlána í hlutfalli við eign hvers og eins þannig að jafnræðis sé gætt. Í ljósi þeirra tilmæla hefur stjórn Landsvaka hf. nú tekið ákvörðun um að selja allar eignir Peningabréfa ISK og að honum verði slitið. Eins og áður segir skýra breyttar aðstæður á markaði og verðfall skuldabréfa innlendra banka stærstan hluta þess taps sem sjóðurinn hefur orðið fyrir. Útgreiðsluhlutfall fyrir Peningabréf ISK verður 68,8% m.v. síðasta skráða gengi Um fullnaðargreiðslu er að ræða og munu greiðslur berast sjóðfélögum hinn 29. október inn á innlánsreikninga sem hafa verið stofnaðir í Landsbankanum þar sem innistæður eru að fullu tryggðar í samræmi við yfirlýsingar ráðamanna. Innlánsreikningurinn mun bera bestu fáanlegu kjör Landsbankans, eða 0,5% betri kjör en þau hæstu sem í boði eru í dag. Í vikunni verður öllum eigendum Peningabréfa ISK tilkynnt um útgreiðsluupphæð og innlánsreikning. F.h. Landsvaka hf. Stefán H. Stefánsson Sigurður Ó. Hákonarson Stjórnarformaður Framkvæmdarstjóri
- Tilkynning um slit og ósk um afskráningu á Peningabréfum Landsbankans ISK
| Quelle: Landsvaki