* Útgreiðsluhlutfall til sjóðsfélaga er 85,12%
* Áherslan var á að breyta eignum í laust fé og lágmarka tap
viðskiptavina
* Upphæðin lögð inn á opinn hávaxtareikning í nafni sjóðfélaga
* Bankinn og Glitnir Sjóðir harma tap sjóðfélaga og óþægindi sem
þeir hafa orðið fyrir
Reykjavík 30. október, 2008 Glitnir Sjóðir hf. greiða út allar eignir
úr Sjóði 9 - peningamarkaðsbréf í dag, fimmtudag. Fjármunirnir verða
lagðir inn á sparnaðarreikninga í nafni hvers sjóðfélaga í hlutfalli
við eign þeirra í sjóðnum.
Útgreiðsluhlutfall sjóðsins er 85,12% sem er allt laust fé sjóðsins
sem og það endurgjald sem hann fékk fyrir verðbréfasafn sitt. Þetta
hlutfall miðast við síðasta skráða viðskiptagengi í Sjóði 9, þann 6.
október sl. Upphæðin verður lögð inn á innlánsreikninga sjóðfélaga.
Starfsmenn og stjórn sjóðsins hafa á síðustu vikum lagt höfuðáherslu
á að koma verðbréfasafni sjóðsins í verð til þess að geta greitt út
inneign sjóðfélaga og lágmarka þannig tap þeirra.
Bestu innlánskjör í boði fyrir sjóðfélaga
Upphæð, sem svarar til hlutfalls hvers sjóðfélaga í sjóðnum, verður
lögð inn á sparnaðarreikning í þeirra nafni hjá Nýja Glitni. Um er að
ræða sparnaðarreikning Eignastýringar sem býður bestu fáanlegu kjör
hjá Glitni. Sérkjör reikningsins eru í boði fram að áramótum fyrir
þá fjárhæð sem sjóðfélagar fá greidda úr sjóðnum. Reikningurinn er
opinn og hægt að taka út af honum á hefðbundinn hátt, í útibúum
bankans og Netbanka Glitnis. Sjóðfélögum verður sent bréf með nánari
upplýsingum um útgreiðslufjárhæð og sparnaðarreikninginn.
Hagsmunir sjóðfélaga í forgrunni
Peningamarkaðssjóðir á Íslandi hafa verið lokaðir til þess að vernda
hagsmuni sjóðsfélaga og freista þess að ná sem bestri niðurstöðu
fyrir þá. Lokunin hefur valdið mörgum viðskiptavinum óþægindum sem
Glitnir Sjóðir harma. Bankinn hefur reynt að koma til móts við
þarfir viðskiptavina sem hafa þurft á aðstoð að halda.
Rétt er að árétta að allar fjárfestingar Sjóðs 9 hafa verið í samræmi
við lög, reglur og fjárfestingarheimildir sjóðsins. Það var síðast
staðfest af Fjármálaeftirlitinu 2. október sl. á heimasíðu FME -
www.fme.is.
Nánari upplýsingar veitir:
Már Másson, forstöðumaður samskiptasviðs, Nýja Glitni, sími: 844
4990,
t-póstur: mar.masson@glitnir.is .
Agla Elísabet Hendriksdóttir framkvæmdastjóri Glitnis Sjóða hf, Nýja
Glitni,
sími: 844 4917, t-póstur: agla.hendriksdottir@glitnir.is .
Glitnir Sjóðir greiða út allar eignir úr Sjóði 9
| Quelle: Glitnir banki hf.