Skilanefnd Kaupþings hefur síðustu vikur unnið að samkomulagi við þýsk stjórnvöld um greiðslu innstæðna til viðskiptavina Kaupthing EDGE í Þýskalandi. Vonir standa til að hægt verði að ljúka þeim á næstu dögum eða vikum. Fulltrúar frá skilanefnd Kaupþings munu funda með þýska fjármálaráðuneytinu og þýska fjármálaeftirlitinu vegna þessa í næstu viku.
- Unnið að lausn Kaupthing Edge í Þýskalandi
| Quelle: Kaupþing banki hf.