Reykjavík 24. nóvember 2008: Héraðsdómur Reykjavíkur veitti Glitni
banka hf.,("Glitni") heimild til greiðslustöðvunar, í dag 24.
nóvember 2008. Að mati skilanefndar bankans var nauðsynlegt að stíga
þetta skref til að tryggja jafnræði kröfuhafa, í samræmi við íslensk
lög og tilskipanir ESB. Greiðslustöðvunin veitir bankanum nauðsynlega
vernd gegn lögsóknum. Á meðan á greiðslustöðvun stendur mun bankinn
halda starfsleyfi sínu að því marki sem nauðsynlegt er til að
viðhalda verðmæti eigna bankans.
Greiðslustöðvunin mun einnig veita Glitni svigrúm til áframhaldandi
viðræðna við kröfuhafa, með það að markmiði að hámarka verðmæti eigna
fyrir alla hlutaðeigandi. Eins og komið hefur fram hefur verið
stofnuð óformleg nefnd kröfuhafa. Með greiðslustöðvuninni er stefnt
að því að gera áframhaldandi samstarf við kröfuhafanefndina
skilvirkara. Ráðgert er að halda annan fund með nefndinni í desember.
Steinunn Guðbjartsdóttir, hæstaréttarlögmaður, hefur verið ráðinn
aðstoðarmaður í greiðslustöðvun. Hún mun starfa með skilanefnd
bankans, en hún mun, lögum samkvæmt, fara áfram með valdheimildir
stjórnar bankans. Markmið hennar eru þau sömu og skilanefndar, að
varðveita eignir og hámarka greiðslu til lánadrottna.
Greiðslustöðvunin er veitt til kl. 13:30 föstudaginn 13. febrúar
2009. Aðstoðarmanni bankans í greiðslustöðvun er skylt að boða fund
með kröfuhöfum, sem haldinn skal eigi síðar en þremur dögum fyrir lok
þess tíma.
Greiðslustöðvunin getur að hámarki varað í 24 mánuði.
Greiðslustöðvunin nær ekki til Nýja Glitnis banka hf., en hann tók
við starfsemi Glitnis á Íslandi, 15. október 2008.
Nánari upplýsingar veitir:
Páll Eiríksson, lögmaður Skilanefndar Glitnis banka hf., netfang
pall.eiriksson@glitnirbank.com, sími 440-2710
Héraðsdómur Reykjavíkur veitir Glitni banka hf. greiðslustöðvun
| Quelle: Glitnir banki hf.