Helstu niðurstöður úr 9 mánaða uppgjöri Atorku Group hf.: Móðurfélagsreikningur: • Tap eftir skatta á þriðja ársfjórðungi ársins var 2,3 milljarðar króna • Tap eftir skatta á fyrstu níu mánuðum ársins var 6,3 milljarðar króna • Heildareignir í lok september voru 58,2 milljarðar króna • Eigið fé var 14,6 milljarðar króna í lok september • Eiginfjárhlutfall í lok september var um 25,1 % • Fjárfestingaverkefni Atorku eru öll í rekstrarfélögum í sérhæfðri framleiðslu og þjónustu • Flest verkefnin eru í vaxtargeirum s.s. endurnýtanlegri orku, vatnshreinsiiðnaði, umhverfistækni og umbúðaframleiðslu • Eignarhlutur Atorku er almennt 20-40% til að tryggja veruleg áhrif varðandi stefnumörkun og stjórnun • Rekstur flestra þessara félaga er utan Íslands og flest þeirra starfa á alþjóðlegum mörkuðum • Nær öll þessi félög eru rekin með hagnaði skv. síðustu uppgjörum Samstæðureikningur: • Tap eftir skatta í samstæðureikningi Atorku Group hf. á þriðja ársfjórðungi var 2,7 milljarðar króna • Tap eftir skatta í samstæðureikningi Atorku Group hf. á fyrstu níu mánuðum ársins var 11,4 milljarðar króna • Rekja má stærstan hluta af tapi í samstæðureikningi til mikillar veikingar krónunnar • Tekjur á fyrstu 9 mánuðum ársins voru 69,9 milljarðar króna • Heildareignir samstæðunnar í lok september voru 129 milljarðar króna • Eigið fé var 0,2 milljarðar í lok september • Afkoma og starfsemi Atorku endurspeglast í móðurfélagsreikningi en ekki í samstæðureikningi. Því eru ákvarðanir teknar út frá móðurfélaginu, til að mynda gengisvarnir sem verja fjárfestingar móðurfélagsins fyrir sveiflum á gjaldeyrismarkaði en koma nú fram sem tap í samstæðureikningi við veikingu krónunnar Helstu atburðir eftir lok 3. ársfjórðungs Atorku Group hf.: • Unnið er að endurfjármögnun skulda félagsins í samvinnu við viðskiptabanka félagsins • Hluthafafundur samþykkti með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða afskráningu úr Kauphöll Íslands • Atorka vann fullnaðarsigur í Hæstarétti í dómsmáli sem höfðað var gegn Kauphöll Íslands vegna athugasemda við framsetningu fréttatilkynningar í ágúst 2006. Áður hafði Atorka unnið málið í Héraðsdómi Reykjavíkur • Kauphöllin hefur tilkynnt að Atorka Group hf. verði afskráð þann 5. des nk. • Þegar hefur verið tekið tillit til í uppgjöri félagsins, áhrifa vegna niðurfærslu hlutabréfa í Glitni og lækkun peningamarkaðssjóðs Glitnis, tæplega 1,7 milljarður Magnús Jónsson forstjóri Atorku: „Aðstæður á fjármálamörkuðum sem og efnahagsástand almennt er verulega erfitt og búist er við samdrætti í mörgum af stærstu hagkerfum heimsins. Þetta leiðir til þess að það er erfiðara en ella að spá fyrir um afkomu fyrirtækja. Aðgengi að fjármagni hefur minnkað gríðarlega sem gerir fyrirtækjum erfitt fyrir að sækja sér fé. Þetta hefur áhrif á fjármagnskostnað og möguleika til vaxtar og endurfjármögnunar. Ástandið á Íslandi er óvenjulegt og litast af mikilli óvissu eftir hrun bankakerfisins. Þessi óvissa endurspeglast í fjármálagerningum sem félagið hefur gert við viðskiptabanka sína til að lágmarka gjaldeyrisáhættu. Þessu til viðbótar hefur gengi krónunnar fallið gríðarlega það sem af er árinu sem veldur því að efnahagsreikningur félagsins stækkar þrátt fyrir töluverða eignasölu. Jafnframt hefur veiking krónunnar í samstæðureikningi þau áhrif að gengisvarnir í móðurfélagi koma fram sem tap í samstæðureikningi. Neikvæð þróun hlutabréfamarkaðar, sérstaklega síðustu mánuði hefur neikvæð áhrif á afkomu félagsins. Fjárfestingar Atorku eru í rekstrarfélögum sem gerir það að verkum að áhrif fjármálakreppunnar hafa ekki jafn neikvæð áhrif á félagið og ella. Helstu fjárfestingar Atorku eru í endurnýtanlegri orku, vatnshreinsiiðnaði, plastiðnaði og sérhæfðri flutningaþjónustu. Atorka hefur síðustu misseri búið sig undir erfiða tíma. Félagið lauk sinni stærstu fyrirtækjasölu til þessa um mitt síðasta ár og framlengdi lánasamningum. Atorka hefur síðasta árið selt verulega af eignum sínum og greitt niður skuldir og þannig undirbúið félagið fyrir erfiðara efnahagsumhverfi. Það sem gerðist í byrjun október með hruni íslenska bankakerfisins var þó mun meira áfall en nokkur gat séð fyrir. Með lungað af sínum fjárfestingum í vel reknum rekstrarfélögum er félagið betur í stakk búið að bregðast við þessum hamförum en ella og mun Atorka áfram styðja við uppbyggingu kjarnafjárfestinga sinna til framtíðar. ” Framtíðarhorfur: Áfram verður lögð áhersla á að styðja helstu fjárfestingaverkefni sem eru í eignasafni félagsins. Fjárfestingaverkefni Atorku eru flest á sviði endurnýtanlegrar orku, plastiðnaðar, vatnshreinsiiðnaðar, umhverfistækni og sérhæfðrar flutningaþjónustu sem njóta góðs af hnattrænni þróun. Skammtímahorfur eru krefjandi og töluverð óvissa um hvernig heimsmarkaðsbúskapurinn muni þróast á komandi misserum. Langtímahorfur fjárfestingaverkefna félagsins eru góðar og mikil vaxtatækifæri á öllum helstu mörkuðum þeirra. Nánari upplýsingar veita; Magnús Jónsson, forstjóri í síma 540 6200 Harpa Þorláksdóttir forstöðumaður samskiptasviðs í síma 840 6212 Reikninga Atorku Group má finna á heimasíðu félagsins www.atorka.is