Stjórn Exista hf. samþykkti á fundi sínum í dag að hefja viðræður við einkahlutafélag í eigu Ágústs Guðmundssonar og Lýðs Guðmundssonar um kaup Exista á öllu hlutafé í Kvakki ehf. og í framhaldi af því að nýta heimild hluthafafundar Exista frá 30. október sl. um að auka hlutafé í félaginu um 50 milljarða hluta til greiðslu fyrir hluti í Kvakki ehf. Tilgangur Kvakks ehf. er varsla handbærs fjár. Ofangreindar viðræður fela í sér að Ágúst og Lýður Guðmundssynir leggi handbært fé Kvakks ehf. til Exista í skiptum fyrir nýtt hlutafé í félaginu. Markmiðið með viðræðunum er að styðja við eiginfjárgrunn Exista og að auka handbært fé og styrkja frekar stöðu félagsins í viðræðum sem nú standa yfir við fjármálastofnanir og lánardrottna. Auk þess samþykkti stjórn Exista að boða til hluthafafundar eigi síðar en 31. desember 2008 þar sem lögð verður fram tillaga um niðurfærslu á hlutafé félagsins. Dagsetning og dagskrá hluthafafundar verður auglýst síðar. Nánari upplýsingar: Samskiptasvið Exista Sigurður Nordal framkvæmdarstjóri Sími: 550 8620 ir@exista.com