- Gengisvísitölur


Eins og áður hefur verið greint frá hætti Seðlabanki Íslands að reikna og birta
svonefnda gengisskráningarvísitölu nú um áramótin. Hins vegar verður haldið
áfram að birta á heimasíðu bankans fjórar aðrar gengisvísitölur svo sem gert
hefur verið sl. tvö ár, sbr. frétt bankans frá 30. nóvember 2006 . Ákveðið
hefur verið að breyta grunni einnar þeirra fjögurra þannig að 2. janúar 2009
taki hún sama gildi og gengisskráningarvísitalan. Þannig myndast framhald
þeirrar talnaraðar sem oft er vitnað til þegar fjallað er um gengi. Sú sem varð
fyrir valinu nefnist gengisvísitala með þröngri viðskiptavog. Af vísitölunum
fjórum er hún líkust gömlu vísitölunni að uppbyggingu. 

Þröng viðskiptavog er reiknuð út frá vöruviðskiptum við öll lönd sem vega að
minnsta kosti 1% í vöruviðskipum Íslands undangengin þrjú ár. Einnig er tekið
tillit til hlutfalls ferðamennsku í þjónustuviðskiptum. Skipting tekna af
ferðamennsku er áætluð út frá landaskiptingu gistinátta erlendra ferðamanna á
hótelum og gistiheimilum, en gjöldin byggja á landaskiptingu
kreditkortanotkunar Íslendinga erlendis.

Anhänge

frettatilkynning nr  1 2009.pdf