Nettósala 374,4 milljónir EBITDA 41,5 milljónir evra á H1 2008/09 Helstu atriði • Nettósala var stöðug fyrstu sex mánuði fjárhagsársins á samanburðargrundvelli og nam 374,4 milljónum evra. Salan nam 249,2 milljónum evra á 2. ársfjórðungi sem er 0,9% samdráttur á samanburðargrundvelli. • EBITDA nam 41,5 milljónum evra fyrstu sex mánuði fjárhagsársins sem samsvarar 5,7% samdrætti á samanburðargrundvelli. EBITDA á 2. ársfjórðungi nam 35,1 milljón evra sem jafngildir 6,6% samdrætti á samanburðargrundvelli. • EBITDA-hlutfall nam 14,1% á ársfjórðungnum, var 0,7 prósentustigum lægra en á sama tíma í fyrra. • Nettóhagnaður nam 17,8 milljónum evra á ársfjórðungnum sem jafngildir 19,8% samdrætti á samanburðargrundvelli. • Þrátt fyrir góða jólasölu hafði efnahagssamdráttur veruleg áhrif á afkomu ársfjórðungsins. Xavier Govare forstjóri: „Alfesca tókst að ná jafngóðri sölu og á síðasta ári þrátt fyrir umtalsverðan samdrátt í almennri neyslu á 2. ársfjórðungi. Þessi árangur náðist með því að leggja fé í markaðssetningu og stýra verði til að tryggja að við værum samkeppnishæf en það setti pressu á framlegðina. Það er ánægjulegt að með markvissum markaðsaðgerðum allan ársfjórðunginn tókst okkur að viðhalda vexti og tryggja markaðsleiðandi stöðu í sölu á reyktum laxi og andalifarkæfu (foie gras) yfir hátíðarnar. Labeyrie hélt 23,7 og 20,6% markaðshlutdeild í þessum vöruflokkum. Hins vegar hafði efnahagsumhverfið áhrif á afkomuna, þar sem neytendur leita leiða til að spara og kaupa ódýrari vörur. Samsetning vörusölunnar varð því óhagstæðari, þar sem minna seldist af merkjavöru og framlegð varð minni. Hærra hráefnisverð á laxi og andaafurðum hafði einnig áhrif á afkomuna en félagið varð að taka þær hækkanir sem urðu fyrr á árinu, að fullu á sig á ársfjórðungnum. Við bættist að fall sterlingspunds gagnvart bandaríkjadollar hækkaði hráefnisverð á rækju sem greitt er fyrir með dollurum og framkallaði óhagstæðan gengismun sem kemur fram þegar starfsemi Alfesca í Bretlandi er gerð upp í evrum. Við reiknum með að markaðsaðstæður á seinni hluta fjárhagsársins verði mjög erfiðar og að almanaksárið muni almennt einkennast af ókyrrð í kjölfar þess að væntingar neytenda hafa fallið umtalsvert undanfarna mánuði. Við gerum ráð fyrir að sú tilhneiging neytenda að leita eftir vörumerkjum verslana (private labels) til að gera hagstæðari kaup muni áfram vaxa. Við gerum einnig ráð fyrir að mánuðirnir framundan muni einkennast af ókyrrð á gjaldeyrismörkuðum eftir því sem áhrif efnahagskreppunnar koma í ljós. Viðbrögð okkar við ástandinu eru að leita leiða til að halda föstum kostnaði samstæðunnar í skefjum, auka skilvirkni og halda öflugri vöruþróun áfram í þeim tilgangi að auka fjölbreytni og styrkja stöðu okkar á lykilmörkuðum.“
- Alfesca heldur sjó í efnahagskreppunni
| Quelle: Alfesca hf.