- Afkoma fagfjárfestasjóðsins KB ABS 12 á árinu 2008


Framsetning ársreiknings fagfjárfestasjóðsins KB ABS 12 er í samræmi við reglur
um reikningsskil rekstrarfélaga verðbréfasjóða sem settar eru af
Fjármálaeftirlitinu. 

•  Enginn hagnaður varð af rekstri sjóðsins á árinu 2008 samkvæmt
   rekstrarreikningi,   en KB ABS 12 er útgefandi skuldabréfa sem tekin hafa
   verið til viðskipta í NASDAQ OMX Iceland hf.
 
•  Eigið fé sjóðsins nam í lok árs 2008 1 m.kr. skv. efnahagsreikningi.

•  Ársreikningurinn var endurskoðaður af KPMG hf. sem telur að ársreikningurinn
   gefi glögga mynd af afkomu sjóðsins á árinu 2008, efnahagi hans 31. desember
   2008 og breytingu á hreinni eign sjóðsins á árinu, í samræmi við lög um
   ársreikninga. 

Eigið fé Rekstrarfélags Kaupþings banka hf., sem er rekstraraðili KB ABS 10,
þann 31. desember 2008 nam 1.244 m.kr. samkvæmt efnahagsreikningi.

Eiginfjárhlutfall sem reiknað er samkvæmt lögum um fjármálafyrirtæki er 16,6%
en samkvæmt lögunum má hlutfallið ekki vera lægra en 8,0%. Rekstrarfélag
Kaupþings banka hf. er dótturfélag Nýja Kaupþings banka hf. og hluti af
samstæðureikningi bankans og dótturfélaga hans. 

Hægt verður að nálgast ársreikning sjóðsins frá og með deginum í dag í móttöku
Rekstrarfélags Kaupþings banka hf. að Borgartúni 19, 105 Reykjavík. 

Nánari upplýsingar um ársreikning KB ABS 12 og Rekstrarfélags Kaupþings banka
hf. veitir Eiríkur Magnús Jensson, sjóðsstjóri, í síma 444 6000.

Anhänge

arsreikningur 31-12-08 kb abs12 .pdf
GlobeNewswire